Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
Íslensk bloggkerfi - gagnrýni & samanburður
Skrifað af Gaui þann 3. maí 2006 - 20:11
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 5109
Áður en ég byrja á því að gagnrýna og bera saman helstu bloggkerfi Íslands, vil ég taka fram að öll mín rannsókn var gerð í gegnum Internet Explorer 6.0 vefskoðarann.

Í þessari grein minni tek ég fyrir 5 íslensk bloggkerfi, fer vandlega í gegnum þau, gagnrýni þau svo, og gef að lokum einkunn.

Þau bloggkerfi sem verða tekin fyrir í þessari gagnrýni eru eftirfarandi:

123.is


Fyrirtæki: 123.is ehf.
Forritunarmál: ASPX/.NET


Fyrst þegar ég skráði mig inn í þetta kerfi, brá mér svolítið. Þetta kerfi lítur út fyrir að vera mjög flókið, fyrst til að byrja með. Eftir smá leit í þessari valmyndasúpu, fann ég "Bæta við bloggfærslu" takka. Smelli á hann og upp kemur valmynd til þess að bæta inn nýrri bloggfærslu. Æðislegt, við erum rétt að byrja.

Bloggið

Textaritillinn (e. editor) er stílhreinn og ágætlega þægilegur. Lítið af valmöguleikum í honum, en það er bara til þess að flækja hann ekki um og of. Það er hægt að nota WYSIWYG/grafískan (What You See Is What You Get) ham og svo er hægt að nota HTML ham, þ.e. ef þú vilt fikta í sjálfum HTML kóðanum, sem er mjög mikill kostur fyrir þá sem kunna sitt fag.

Það er hægt að velja hvort maður vilji birta færsluna, læsa henni, setja hana í flokk, sett höfund, ofl. Svo þegar maður breytir færslunni, getur maður breytt dagsetningunni, flokknum og höfundinum, ofl. Ágætlega þægilegt, og ekkert allt of flókið. Takkarnir til að vista færsluna ofl. eru stórir og ættu þeir ekki að fara fram hjá neinum.

Hægt er að breyta stillingum fyrir bloggið, þ.á.m. setja texta sem birtist fyrir ofan bloggið, setja sjálfgefinn höfund að færslum, leyfa notendum að skrifa við færslur, hægt að fá tölvupóst þegar fólk skrifar athugasemdir, birta læstar færslur á aðalbloggi, birta flokka fyrir ofan blogg, hægt að velja hversu margra ára gamlar færslur á að sækja aftur í tímann í yfirliti og hversu margra mánaða gamlar færslur á að sýna aftur í tímann, hægt að velja að sýna einungis fyrirsagnir á öllum færslum og hversu margar færslur eigi að sýna með efni.

Myndir

Myndakerfið hjá þeim virðist vera voða flott, en það hefur sína kosti og galla. Kostirnir eru þeir að það er hægt að velja hvort maður vilji setja inn mynd af tölvunni, setja inn mynd sem er á internetinu, eða velja mynd sem er til inni í kerfinu, minnka og stækka myndirnar, setja titil á þær, breyta staðsetningu, ofl. Gallarnir eru að það koma mikið af javascript villum hjá mér, maður þarf að ná í eitthvað sérsmíðað forrit til þess að setja inn albúm, og svo kom myndin sem ég setti inn, ekki fram á síðunni minni. Eitthvað sem betur mætti fara.

Það eru stillingar fyrir myndirnar, og það er meðal annars hægt að velja hvort að notendur fái að setja athugasemdir, hægt að velja hvort notendum sé leyft að hægri smella. Einnig er einhver myndasýningar-valmöguleiki (e. Slideshow). Hægt er að fá tölvupóst þegar einhver segir skoðun sína á mynd, hægt að vela hvernig albúmin raðast (eftir dagsetningu, tili, flokk, o.s.frv.), hversu mörg albúm eigi að vera í hverri röð, hvar upplýsingar um albúmið eigi að birtast (til hægri eða fyrir neðan), ofl.

Tenglar

Þú getur sett inn tengla á síðuna. Þar skrifaru texta og slóð, og velur að lokum flokk fyrir tengilinn. Þú getur ekkert valið hvar tengillinn birtist, heldur birtist hann bara efst á öllum síðunum. En það fer væntanlega eftir útliti. Ég hef greinilega valið svona óvinalegt útlit.

Hægt er að stilla hvernig tenglarnir raðast; eftir stafrófsröð, heiti flokka, o.s.frv.

Gestabók

Auðvitað er gestabók í þessu kerfi. Það er hægt að stilla hana smávegis, þ.á.m. er hægt að setja inn texta sem birtist fyrir ofan gestabókina, og einnig er hægt að fá tölvupóst þegar einhver skrifar í gestabókina.

Skoðaðanakönnun

Eins og í flest öllum bloggkerfum, er valmöguleiki um að hafa skoðanakönnun. Það er svolítið þægilegt hvernig að þessu er komið í þessu kerfi. Þú getur valið titil, hvort þú viljir leyfa 1 svarmöguleika eða marga. Svo til að byrja með birtast 5 reitir fyrir svarmöguleika, en svo er takki fyrir neðan merktur "Vil fleiri línur" og ef á hann er ýtt, birtist önnur lína fyrir neðan, o.s.frv. Virkilega þægilegt. Í sumum bloggkerfum er einungis pláss fyrir 5 svarmöguleika, og tel ég það mikinn ókost.

Mér ber einnig að minnast á það að þegar ég bjó til könnunina og fór beint í að skoða svörin, án þess að svara, komu helling af NaN% - og veit ég að það er galli.

Teljari

Teljarinn í þessu kerfi er bráðskemmtilegur. Hægt er að fletta heimsóknum upp eftir ákveðnri dagsetningu, mánuði eða ári. Einnig er hægt að skoða heimsóknir á flest öllum síðum vefsins, þó það sé ekki hægt að skoða heimsóknirnar á síðurnar sem ég bjó til í kerfinu.

Einnig er smá galli við þennan teljara. Hann telur allar heimsóknirnar. Ég sé allavega ekki neinn valkost um að sýna bara einstakar heimsóknir (e. unique visits), þ.e.a.s. hver heimsókn er einungis skráð einu sinni.

Síðustjórnun

Ég virðist geta búið til nýjar síður í þessu kerfi, sem er flott. Ég get líka breytt titlinum á tilbúnu síðunum, þ.e.a.s. forsíðunni, gestabókinni, myndunum, o.s.frv. og einnig get ég valið hvort ég vilji fela síðurnar.

Einnig er hægt að læsa síðunum með lykilorði. Ég sé hins vegar einn galla í þessu, þar sem það er ekki hægt að læsa síðunni sem ég bjó til, en það er hins vegar hægt að velja að læsa öllum síðunum, og þá læsist allt saman.

Útlit

Útlitið sem ég fæ til að byrja með, er ekkert sérlega flott, en það er víst hægt að breyta því. Ég fæ 30 þemu sem ég get valið um. Það er ágætt. Einnig er hægt að breyta um hausmynd og bakgrunn, þó ég fái upp skilaboðin: "Því miður er ekki hægt að skipta um bakgrunn fyrir þetta útlit". En það hlýtur þá að vera hægt fyrir önnur útlit? Það er allavega valmöguleiki í kerfinu.

Það er eitt sem mér finnst vera voðalega góður kostur við þetta kerfi, er það að maður getur breytt HTML og CSS kóðanum á bak við síðuna. Það leyfa ekki öll kerfi, en það er hægt þarna. Þannig ef þú hefur kunnáttuna í að búa til þitt eigið útlit, geturu það.

Stillingar

Hægt er að breyta stillingum síðunnar. Það er meðal annars hægt að setja inn titil og lýsingu fyrir síðuna. Einnig er hægt að velja um hvort þú viljir að titillinn og lýsingin sjáist á forsíðu 123.is. Þú getur valið um hvort þú viljir birta teljara neðst á öllum síðum, hvort þú viljir birta prófílinn þinn, RSS 2.0 takka, tungumálamöguleika, ofl. Svo geturu valið sjálfgefið tungumál síðunnar, hvað eigi að birtast á forsíðunni, ofl. Nokkuð almennar stillingar.

Þegar ég fer og breyti lykilorðinu mínu, kemur lykilorðið mitt fram á skjáinn sem texti, þannig þú skalt passa þig að vera ekki í kringum neinn þegar þú ákveður að breyta lykilorðinu þínu. Þetta þýðir væntanlega að þeir geymi lykilorðin ódulkóðuð í gagnagrunninum. Þetta er stór galli og stórhættulegt í þokkabót, upp á innbrot ofl.

Myndbönd

Þú getur víst sett inn myndband líka, en þú þarft þetta forrit, þannig við förum ekkert nánar út í það.

Niðurstaða

Þetta kerfi er ágætlega úthugsað, þó það sé ekki nógu vel útfært. Það er þó nóg af valmöguleikum og stillingum fyrir hvern hlut á síðunni. Ég er heldur ekki nógu ánægður með það að aðgangur að þessu kerfi skuli kosta. Þeir gefa manni prufuaðgang í 30 daga, en svo verður maður að borga ef maður vill halda áfram, eftir 30 daga.

Það sem dró einkunn þessa kerfis helst niður, var það að aðgangur að kerfinu kostar, það voru of mikið af javascript villum, og útlit vefsins, sem ég gerði, er fáránlegt. Það er ekkert hægt að breyta því.

Ég gef þessu kerfi 4 af 10 í einkunn.

Slóð á kerfið:
http://www.123.is

Slóð á mína síðu:
http://www.123.is/gauiis/

blog.is


Fyrirtæki: Morgunblaðið
Forritunarmál: Perl/JSon


Á forsíðunni í stjórnborðinu er yfirlit yfir allt það helsta. Þar er "Ný bloggfærsla" takki, ásamt færslulista og stöðu myndapláss. Allt það helsta sem maður þarf. Þetta byrjar vel amk. Ef maður lendir svo í einhverju veseni, er hjálpartakki þarna, þannig það eru mjög miklar líkur á því að maður geti bjargað sér í gegnum þetta.

Uppi er valmynd/flipar, þar sem ég get valið hverju ég vilji stjórna. Þetta er mjög þægilegt. Mjög gott skipulag í kerfinu.

Blogg

Ég smelli á "Blogg" og þá kemur auka-valmynd, þar sem ég get stjórnað öllu undir blogginu, þ.e.a.s. færslulisti, leit, stillingar, athugasemdir, gestabók, ofl.

Textaritillinn er lítill og einfaldur í notkun. Allir valmöguleikar sem þú þarft að notast við, eru til staðar. Bæði er möguleiki á því að fikta í HTML ham og grafískum/WYSIWYG ham, sem er mjög mikill kostur.

Færslulistinn er þarna til staðar. Þú sérð yfirlit yfir 20 síðustu færslur. Ef þú vilt grúska í eldri færslum, geturu farið í leitina. Mjög sniðugt.

Stillingarnar fyrir bloggið eru líka mjög þægilegar. Hægt er að stilla titil og lýsingu á blogginu. Hvort að bloggið sjáist á blog.is, hvort að bloggið birtist á forsíðunni, hvort það megi og hverjir megi skrifa athugasemdir, hvort að gestabókin sé tengd við bloggið, hvort maður þurfi að staðfesta netfang, til þess að mega skrifa athugasemdir. Svo er hægt að velja hversu margar færslur birtast á forsíðu, hægt að velja dagsetningarsnið og meginflokk bloggs.
Ég skil ekki alveg tilganginn í þessu möppunafni. Af hverju að þurfa að geta breytt http://jon.blog.is/blog/XXX/ ? Af hverju ekki bara að hafa það http://jon.blog.is/ ? Allavega, skiptir ekki máli.

Athugasemdum á blogginu geturu alfarið stjórnað. Þú getur t.d. valið um að fela ákveðnar athugasemdir.

Gestabókin er einnig þarna til taks. Þú getur svo eytt þeim færslum sem þú vilt ekki hafa.

Myndir

Myndakerfið er afar þægilegt! Fyrst býrðu til albúm, svo eftir að þú hefur búið til albúm. Þar geturu sett inn titil og lýsingu albúms, valið hvort það sé virkt o.s.frv. Eftir það fer hún strax í það að leyfa þér að setja inn mynd. Þar geturu valið titil, lýsingu, ljósmyndara, stað, tíma töku myndar o.s.frv., svo fer hún eftir það í myndalistann, þar sem þú færð yfirlit yfir albúmin og myndirnar þínar. Afar þægilegt að hafa þetta svona þrepaskipt og hálfpartinn sjálfvirkt.

Flokkar

Þarna geturu bætt við, breytt og eytt flokkum, til að flokka blogg, bloggfærslur og albúm.

Listar

Þarna geturu bætt við listum á síðuna þína. T.d. bókum, fólki, HTML(?), RSS-straumum, tenglum og tónlist. Í stað þess að hafa sitthvora virknina á bak við allt þetta, þá er þetta sett allt saman í eina valmynd, þ.e. "listar".

Stillingar

Fyrst þegar ég fór í "Mínar stillingar", fékk ég á forsíðunni upp yfirlit yfir stöðu myndaplássins míns.

Svo smelli ég á "Notandaupplýsingar", fæ ég upp helling af stillingum fyrir sjálfan mig, þ.e. stutt og lengri höfundarlýsing, mynd af höfundi, sími, farsími, heimilisfang og póstnúmer. Svo get ég einnig breytt lykilorðinu mínu þarna. Lykilorðið er að sjálfsögðu dulkóðað. Húrra!

Því næst er valmöguleiki um kaupa meira myndapláss. Sniðugt að hafa þjónustuna fría, en svo að rukka fyrir aukaþjónustu (t.d. stærra myndapláss).

Því næst er það "Aðgangsstjórnin". Þar get ég valið um að leyfa öllum að lesa bloggið mitt, leyft öllum að skrifa athugasemdir og að ég geti einungis skrifað færslur. Svo ef ég tek hakið úr að allir megi lesa bloggið, get ég bætt inn í lista hægra megin yfir notendur sem mega lesa bloggið. Stórsniðugt!

Útlit

Þarna get ég valið 29 mismunandi útlit, og koma öll þau útlit ágætlega út, sama hvaða efni ég set inn.

Hægt er að stilla toppmynd (hausmynd) síðunnar, valið síðueiningar, þ.e. bætt við/breytt/eytt einingum á síðunni. Þetta er virkilega þægilegt, og gefur þér mjög góða stjórn á síðunni þinni. Þú getur einnig valið leturgerð/stærð og lit á öllum texta á síðunni þinni.
Einnig er hægt að stilla allt í kringum síðueiningarnar, en þetta er bara fyrir þá sem vilja geta stillt allt. Í byrjun eru sjálfgefnar stillingar, þannig fólk þarf ekkert að fikta í þessu, frekar en það vill.

Einnig getur þú búið til nýtt þema og sett það sjálfur inn. Einfalt og þægilegt. Þó ég vildi heldur geta breytt HTML og CSS kóðum síðunnar.

Niðurstaða

Ég verð nú bara að segja að þetta kerfi kom mér algjörlega á óvart. Þetta er mjög einfalt, mjög vel skipulagt og mjög þægilegt. Svo eru stillingar ofl. fyrir þá sem kunna á þetta, og vilja fikta í flóknari hlutum.

Það var voða fátt sem dró einkunn kerfisins niður, ef það var þá eitthvað.

Ég gef þessu kerfi 8 af 10 í einkunn.

Slóð á kerfið:
http://www.blog.is

Slóð á mína síðu:
http://gaui.blog.is

blog.central.is


Fyrirtæki: 365 - prentmiðlar ehf. (vísir)
Forritunarmál: PHP


Á forsíðunni í kerfinu blasir við mér leiðinleg sjón. Það er einhver skylduskráning á minnsirkus.is. Hvað ef ég vil ekki skrá mig á minnsirkus.is? Hvað þá?! Alltaf verið að neyða mann til þess að gera eitthvað. Algjörlega óþolandi! Þetta er svipað drasl og hinn illræmdi staðfestingarkóði. Ég finn á mér að gagnrýnin á þetta kerfi eigi eftir að verða svakaleg. Ég neyðist víst til þess að skrá kennitöluna mína á minnsirkus, bara svo ég gæti gagnrýnt þetta kerfi.

En tölum aðeins um þennan elskulega staðfestingarkóða. Sama hvort maður skrifi réttan kóða, þá kemur samt villa. Maður þarf að endurtaka kóðann 2-5x áður en maður nær að setja inn eina litla athugasemd. Það er kraftaverk ef kóðinn er réttur í fyrstu tilraun.
Vinir mínir eru flest allir skráðir með blogg þarna, og ef ég, sem vinur þeirra, ætla að senda inn athugasemd á síðuna þeirra, þarf ég að vera í nokkrar mínútur að skrifa athugasemdina, svo ef ég gleymi að afrita athugasemdina og það kemur villa í staðfestingarkóða, þarf ég að skrifa hana aftur og það nennir enginn heilvita maður að gera það! Þetta mun verða til þess að allir fara að skipta í eitthvað annað kerfi.

En áfram með smjörið. Núna hins vegar blasa við mér stórar myndir af einingum í kerfinu. Þetta lítur alls ekki út fyrir að vera flókið kerfi. En hún er svolítið lengi að hlaða hverja síðu, þar sem það virðist vera gríðarlegt álag á þjóninum þeirra. Ég verð víst að draga kerfið í heild sinni niður fyrir það.

Dagbók (e. blog)

Ég fæ strax upp aðvörun. Í henni stendur: "ATH. Eins ótraustvekjandi og þetta hljómar þá mælum við sterklega með því að fólk skrifi textann fyrst í word, notepad eða öðru ritvinnsluforriti og afriti svo textann hingað yfir. Sumir hafa lent í þeirri óþolandi aðstöðu að horfa upp á heilar ritgerðir verða að engu :( aðeins vegna þess að langan tíma tók að skrifa greinina.". Ókei! Og er ekki hægt að laga þetta?

En textaritillinn er lítill og nettur en með svolítið mikið af valmöguleikum sem eru óvirkir. Hægt er að skipta á milli HTML hams og WYSIWYG/grafísks hams, sem er kostur. Svo fyrir neðan ritilinn birtast allar færslur sem maður hefur skrifað. Einfalt og þægilegt.

Athugasemdir

Þarna get ég eytt athugasemdum sem komið hafa á bloggfærslurnar mínar. Voða einfalt eitthvað.

Síðustjóri

Þarna er hægt að búa til síður og getur valið valmynd (flokk) fyrir þær, en það er eitt svolítið ruglingslegt við þetta. Þarna býrðu til síðurnar, en til þess að búa til valmyndina (flokkinn) fyrir síðuna, þarftu að fara í "tenglar" og búa til nýjan "tenglaflokk".

Aukahlutir

Þarna eru nokkrir hlutir sem margir notfæra sér. Þ.á.m. niðurtalning, klukka, stafræn klukka, upptalning, HTML textabox, RSS, dagsetning, dagatal og leitarbox.

Gestabók

Þarna geturu stjórnað færslunum í gestabókinni. Eytt þeim, o.s.frv.

Notendur

Þetta er svolítið sniðugt. Þarna er hægt að bæta við notendum á bloggið þitt. Það er sér notendahópur fyrir þína bloggsíðu, sem þú getur stjórnað. Þetta er sniðugt þegar margir aðilar eru með eina bloggsíðu saman. Þetta er mjög mikill kostur.

Tenglar

Þarna getur þú búið til tenglaflokka, sett inn tengla í tenglaflokkana, o.s.frv. Einnig eru þessir tenglaflokkar notaðir fyrir sérsmíðaðar síður í síðustjóranum. Skrítið fyrirkomulag.

Skoðanakönnun

Þarna getur þú sett inn skoðaðanakannanir á bloggsíðuna þína. Eini gallinn við þetta er að það er leyft mest 5 svarmöguleika, þannig maður getur ekki gert skoðanakannanir með fleiri en 5 svarmöguleikum. Þetta er ókostur.

Heimsóknir

Þetta virkar ekki. Fæ bara upp: "Þessi valmöguleiki hefur verið gerður óvirkur um tíma".

Notandi og útlit vefs

Þarna getur maður valið 21 mismunandi þemu og stillt helstu upplýsingar fyrir síðuna, þ.e. titil síðunnar, heiti vefsíðu og mynd í haus. Svo geturu einnig stillt notandanafnið þitt, netfang og lykilorð.

Niðurstaða

Þá er það bara komið. Þetta kerfi er einfalt og gott. Býður upp á helstu valmöguleika til þess að byggja upp ágætis bloggsíðu. Vantar samt myndakerfi og smotterí, en það bíður bara betri tíma.

Það sem dró einkunn þessa kerfis niður var hversu allt var hægvirkt.

Ég gef þessu kerfi 5 af 10 í einkunn.

Slóð á kerfið:
http://blog.central.is

Slóð á mína síðu:
http://blog.central.is/gauiis

folk.is


Fyrirtæki: 365 - prentmiðlar ehf. (vísir)
Forritunarmál: PHP


Ég bjó til aðgang og svo þegar ég skoðaði síðuna mína, kom bara: "Þessi notandi hefur ekki gert síðuna virka" eða eitthvað álíka. Svo las ég einhverstaðar að síðan yrði virk um leið og fyrsta bloggfærslan kæmi inn.

Dagbókin

Þarna get ég stjórnað bloggfærslunum. Eini gallinn sem ég sé þarna, er að þegar ég eyði bloggfærslu, fæ ég ekki staðfestingu um hvort ég vilji í raun og veru eyða henni. Kannski eyddi ég vitlausri færslu? Hvað gerir maður þá? Þetta er ókostur.

Myndasafnið

Fæ bara upp: "Þú ert ekki með aðgang að myndakerfinu. Aðgangur að myndakerfinu verður hægt að fá bráðlega og verður það auglýst síðar.". Skemmtilegt!

Vinir & Vandamenn

Þarna get ég sett inn alla vini mína. Get sett inn nafn viðkomandi, netfang, veffang og svo einhvern texta um viðkomandi. Einskonar tenglasíða?

Breyta textum

Þarna get ég breytt heitinu á síðunum sem eru tilbúnar í kerfinu fyrir, þ.e. heitinu á blogginu, myndasafninu, vinum & vandamönnum og gestabókinni. Einnig get ég breytt titlinum á síðunni.

Breyta lykilorði

Þarna get ég breytt lykilorðinu sem mér var gefið í byrjun skráningarferlisins. Mér finnst það ókostur að ég hafi ekki fengið að velja lykilorðið í byrjuninni. Ég þurfti að bíða eftir einhverjum tölvupósti sem innihélt lykilorðið mitt til þess að skrá mig inn. Til hvers eiginlega?

Útlits-stillingar

Þarna get ég valið músarbendil, bakgrunn og hausmynd, allt fyrir síðuna mína. Ég spyr; Til hvers að velja músarbendil? Út af því að það er ýkt kúl og algjört æði? Nei, það er það nefnilega ekki. Sé engan tilgang í því. Hitt má samt alveg vera.

Síðustjórinn

Þarna get ég búið til síður og stjórnað þeim. Mjög hentugur valmöguleiki.

Gestabókin

Þarna get ég stjórnað gestabókinni. Hent út færslum, o.s.frv.

Niðurstaða

Þetta kerfi er sniðugt til síns brúks, en er frekar einfalt og óþróað. Þetta kerfi er fínt fyrir krakka á aldrinum 12-14 ára, sem hafa gaman af því að breyta músarbendlinum hjá fólki sem er að skoða síðuna.

Útlit síðunnar er einnig ekki skv. stöðlum W3C, þannig síðan kemur öðruvísi út í Internet Explorer, heldur en FireFox. STÓR galli!

Ég gef þessu kerfi 3 af 10 í einkunn.

Slóð á kerfið:
http://www.folk.is

Slóð á mína síðu:
http://folk.is/gauiis

bloggar.is


Fyrirtæki: Aranea ehf.
Forritunarmál: PHP


Ég prófaði þetta kerfi um daginn, strax og það fór í loftið. Ég var mjög ánægður með það, og fannst þetta eitt af bestu kerfunum.

Efst uppi eru leiðarstyttingar fyrir mest notuðustu einingarnar í kerfinu. Það er mjög þægilegt.

Bloggið

Þarna er hægt að búa til nýja bloggfærslu. Textaritillinn er mjög þægilegur, lítill, nettur og ekki með mikið af óþarfa tökkum. Einnig er hægt að velja hvort með vilji leyfa athugasemdir, fá sms þegar athugasemd er skrifuð, birta færslu á forsíðu bloggar.is eða læsa færslu. Einnig er hægt að setja bloggfærsluna í flokk. Þessi SMS valmöguleiki er hins vegar algjör snilld. Þetta hef ég ekki séð áður. Þetta kerfi fær stóran plús fyrir það.

Gagnasafnið hefur að geyma allar færslur sem eru skrifaðar í mánuðinum, en hægt er að fletta á milli mánaða í dagatali, hægra megin á síðunni. Mjög þægilegt.

Svo er hægt að búa til blogg-flokka. Hentugt ef maður vill skipta bloggfærslunum niður.

Stillingarnar hafa svo að geyma valmöguleika fyrir allar færslur, þar sem þú getur stillt hvort þú viljir leyfa athugasemdir á færslurnar þínar, fá sms þegar athugasemd er skrifuð, o.s.frv.

Undirsíður

Þetta er í raun og veru síðustjórinn, þar sem þú getur búið til sérsmíðaðar síður. Það er hins vegar eitt svolítið skrítið við þetta. Ég valdi "Nota fullkomnari ritil" þannig ég gæti valið leturgerð, leturstærð, liti ofl. á síðunum, en ég fékk ekki upp fullkomnari ritilinn. Það sama er að gerast í blogginu. Hún er hætt að sýna mér fullkomnari ritilinn.

Myndir

Þarna er hægt að senda inn allt að 10 myndir, og búa til myndaalbúm um leið. Þegar búið er að búa til albúm og senda inn mynd, er hægt að snúa myndinni réttsælis/rangsælis, setja lýsingu við myndina, eyða henni ofl.

Könnun

Þarna er hægt að stjórna könnunum. Það er ekki hægt að setja inn fleiri svarmöguleika en 10, en 10 er þó skárra en ekkert. Ekki satt?

Gestabók

Þarna er hægt að stjórna alfarið gestabókinni, þ.á.m. hægt að velja hvort maður vilji hafa gestabók á síðunni sinni eða ekki. Einnig er hægt að fá sms þegar einhver skrifar í gestabókina.

Veskið

Þarna er hægt að sjá yfirlit yfir hvaða þjónustur eru virkar hjá manni. Bloggkerfið, könnunin, undirsíðurnar og gestabókin; allt eru þetta fríþjónustur. En svo er hægt að fá aukna þjónustu fyrir ákveðna upphæð. Við förum ekkert nánar út í það.

Stillingar

Þarna er hægt að velja um 5 útlit til þess að hafa á síðunni sinni. Einnig er hægt að stilla titilinn og undirtitilinn á síðunni, litina, sniðmátið (hvort að valmyndin sé vinstra eða hægramegin) ofl. Einnig er hægt að breyta hausmyndinni.

Það er einnig hægt að stilla kubbana sína þarna. Kubbar eru einingarnar sem þú vilt hafa inni á síðunni. Þar má meðal annars nefna tenglakubb, undirsíðukubb, klukkukubb o.s.frv.

Einnig er hægt að breyta öllum upplýsingum um eiganda síðunnar.

Teljari

Þarna er hægt að sjá heimsóknir í dag, í gær, seinustu 7 daga, fyrir þennan mánuð og frá upphafi. Það er bæði hægt að sjá einstakar heimsóknir og flettingar, sem er mjög mikill kostur.

Niðurstaða

Þetta kerfi líst mér mjög vel á, og hefur gert alveg frá upphafi. Mér líst vel á útlitin sem þeir eru með til að velja á milli, sms fídusinn ofl.

Það sem dró þetta kerfi niður var gallinn í ritlinum. Voða fátt annað.

Ég gef þessu kerfi 8,5 af 10 í einkunn.

Slóð á kerfið:
http://www.bloggar.is

Slóð á mína síðu:
http://gaui.bloggar.is

Hver er svo bestur?


Er það ekki nokkuð augljóst? Það er allavega mikil barátta á milli tveggja kerfa, en voru þau kerfi mjög jöfn. Ég tel að bloggar.is sé aðeins ofar en blog.is, út af því að það eru nokkur smáatriði sem mér fannst þægilegri í bloggar.is kerfinu. Annars voru þau mjög jöfn.

Topp listinn


1. bloggar.is (Aranea ehf.)
2. blog.is (Morgunblaðið)
3. blog.central.is (365 - prentmiðlar ehf.)




Athugasemdir ():