Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist
Skrifað af Gaui þann 21. júlí 2006 - 18:34
Fjöldi lestra: 2100
Athugasemdir ( ):
Spil - Forseti
Skrifað af Gaui þann 21. júlí 2006 - 18:34
Fjöldi lestra: 2100Þetta er spil, sem er hægt að spila allt frá 3-6 manns. Þetta snýst allt út á það að klára öll spil á hendi og vinna titilinn sem "Forseti" og ekki enda sem "Skítur".
Ef það eru 5 manns að spila, eins og áætlað er, eru 5 stöður; Forseti, Vara-Forseti, Hlutlaus, Vara-Skítur og Skítur.
Spilin eru röðuð eins og í flestum spilum, fyrir utan það að tvisturinn er hæstur, ásinn er næst hæstur, svo kemur kongurinn, o.s.frv. Lægsta spilið er sem sagt þristurinn. Þegar búið er að gefa eru afgangsspilin sett í "þristasjóð", þar sem fólk sem er með þrista getur skipt þeim út fyrir önnur spil sem eru í "þristasjóðinum". Sem sagt það er aldrei notað þristana í spilinu.
Stöður
6 manns = Forseti, Vara-Forseti, Hlutlaus, Hlutlaus, Vara-Skítur, Skítur. 8 spil á mann og 4 spil eftir, sem fara í "þristasjóðinn"
5 manns = Forseti, Vara-Forseti, Hlutlaus, Vara-Skítur, Skítur. 9 spil á mann og 7 spil eftir, sem fara í "þristasjóðinn"
4 manns = Forseti, Vara-Forseti, Vara-Skítur, Skítur. 12 spil á mann og 4 spil eftir, sem fara í "þristasjóðinn"
3 manns = Forseti, Hlutlaus, Skítur. 16 spil á mann og 4 spil eftir, sem fara í "þristasjóðinn"
Hlutverk
Forseti: Forsetinn er besta staðan í spilinu. Maður keppist alltaf um það að verða Forseti. Forseti og Skítur þurfa alltaf að skiptast á tveimur bestu og verstu spilunum. Forsetinn gefur skítnum tvö sín verstu spil (t.d. fjarki og fimma) og Skíturinn gefur forsetanum sín tvö bestu spil (t.d. tveir tvistar). Skíturinn má ekki velja hvaða spil hann gefur Forsetanum, en Forsetinn má ráða hvaða spil hann gefur Skítnum. Forsetinn byrjar alltaf á því að gefa í byrjun á spilinu.
Vara-Forseti: Vara-Forsetinn er næst besta staðan í spilinu. Vara-Forseti og Vara-Skítur þurfa alltaf að skiptast á einu besta og versta spilinu. Vara-Forsetinn gefur Vara-Skítnum eitt sitt versta spil (t.d. fjarki) og Vara-Skíturinn gefur Vara-Forsetanum sitt besta spil (t.d. tvistur). Vara-Skíturinn má ekki velja hvaða spil hann gefur Vara-Forsetanum, en Vara-Forsetinn má ráða hvaða spil hann gefur Vara-Skítnum.
Hlutlaus: Hlutlaus er sá aðili sem er algjörlega hlutlaus í spilinu. Hann þarf ekki að skipta við neinn á spilum.
Vara-Skítur: Vara-Skítur er næst versta staðan í spilinu. Vara-Skítur og Vara-Forseti þurfa alltaf að skiptast á einu versta og besta spilinu. Vara-Skíturinn gefur Vara-Forsetanum eitt sitt besta spil (t.d. tvistur) og Vara-Forsetinn gefur Vara-Skítnum sitt versta spil (t.d. fjarki). Vara-Forsetinn má velja hvaða spil hann gefur Vara-Skítnum, en Vara-Skíturinn má ekki ráða hvaða spil hann gefur Vara-Forsetanum.
Skítur: Skíturinn er versta staðan í spilinu. Maður keppist alltaf um það að verða ekki Skítur. Skítur og Forseti þurfa alltaf að skiptast á tveimur verstu og bestu spilunum. Skíturinn gefur Forsetanum tvö sín bestu spil (t.d. ás og tvistur) og Forsetinn gefur Skítnum sín tvö verstu spil (t.d. tveir fjarkar). Forsetinn má velja hvaða spil hann gefur Skítnum, en Skíturinn má ekki ráða hvaða spil hann gefur Forsetanum. Skíturinn gefur alltaf.
Leikreglur
Þetta er lotuspil. Einn vinnur, þ.e.a.s. verður Forsetinn. Svo er þetta spilað aftur og aftur, og verður mikið um breytingar í spilinu, þ.e. hver verður Forseti, Vara-Forseti, Hlutlaus, Vara-Skítur og Skítur.
Það verður alltaf að setja út hærra spil en er úti. T.d. ef það er átta úti, verður næsti sem á að gera, að setja út hærra en áttu, t.d. tíu. Hægt er að nota tvennur, þrennur og fernur (tvær áttur, þrjár áttur og fjórar áttur), en þá verður alltaf að setja fjögur spil sem eru hærri en eru úti. Ef það er t.d. sett út þrjár áttur, verður næsti sem á að gera að setja hærra en það, t.d. þrjá gosa, o.s.frv. Lotan/spilið er búið þegar einhver er orðinn skítur.
Skíturinn á alltaf að gefa og hann á alltaf að gefa sólahringinn (vinstri). Einnig er gott að gefa bara nokkur í einu á mann. Einnig er mjög gott að stokka ekki of oft. Það er nóg að stokka 3-4x, svo að fólk fái ekki of mikið af staklingum.
Fyrsta spilið
Fyrsta spilið er þannig að enginn hefur neina stöðu. Enginn skiptir spilum sín á milli heldur. Svo vinnur fólk sig bara upp eða niður eftir fyrsta spilið. Eftir fyrsta spilið, gefur Skíturinn alltaf.
Að lokum
Svo er eflaust hægt að breyta þessu í drykkjuspil fyrir þá sem finnst svoleiðis skemmtilegt. Þá yrði það þannig að sá sem yrði skíturinn þyrfti að taka einhverja ákveðið marga sopa, o.s.frv. Það er ekki til neitt svona drykkjuspil en það er auðvelt að breyta því í eitt slíkt. :)

Athugasemdir (