Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
Hvað er RSS?
Skrifað af Gaui þann 6. mars 2007 - 13:44
0 athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 1686
Flest ykkar, sem ekki eruð vel að ykkur í tölvumálum, vitið örugglega hvað bookmarks í flestum vöfrum er - en vitið ekkert hvað RSS er. Ég ætla að útskýra fyrir ykkur í grófum dráttum hvað þetta stórkostlega fyrirbæri er, en segjum bara að RSS sé The New Bookmarks.

Öll kannist þið við að fá póst og póstforritið merkir póstinn sem er ólesinn. Hvernig litist þér á að vera með forrit sem segði þér hvaða fréttir og færslur á bloggfærslum eru nýjar og ólesnar? Þú fengir auðvitað að velja hvaða síður þú myndir verða áskrifandi að.

Ég hef um tíðina verið mikið í því að skoða blogg hjá ýmsu fólki og lesa fréttir á netinu. Ég hef ætíð haft allar síðurnar sem ég skoða í tabs eða bookmarks í FireFox hjá mér. Ég er kannski svolítið eftir á en ég uppgötvaði ágæta leið til þess að færa hugtakið bookmarks upp á aðeins hærra level. Ég uppgötvaði auðvitað ekki þessa leið, en ég prófaði hana í fyrsta skipti núna áðan og líkaði helvíti vel!

RSS þýddi áður Rich Site Summary en nú er komin ný þýðing með tilkomu nýrrar útgáfu nr. 2 og er það Really Simple Syndication. RSS er á góðri íslensku veffóðrari (e. web feed) en tilgangur þess er að gefa fólki kost á því að sækja efni af síðum, sem eru uppfærðar reglulega. T.d. frétta- og bloggsíður, podcasts, o.s.frv.


RSS notar XML málið til þess að birta yfirlit yfir nýjasta efnið á sem einfaldastan hátt. Ég ætla nú ekki að fara út í að lýsa því hvernig XML virkar, en þið getið lesið ykkur til um það.

En ástæðan fyrir þessari færslu er að benda ykkur á þessa æðislegu tækni og jafnframt að ýta undir að þið nýtið ykkur þessa tækni.

En hvað er hægt að gera með þetta RSS? Skoðum t.d. mitt RSS feed. Þarna eru 10 nýjustu bloggfærslurnar mínar. Þið gætuð t.d. sett færslurnar mínar inn á síðuna ykkar. Ég veit allavega að Moggabloggið býður upp á þann möguleika, en ef þið eruð fær í einhverju forritunarmáli getið þið auðveldlega birt þetta á síðunni ykkar. Ekki bara nóg með það heldur getið þið einnig náð í einhvern RSS Feed Reader (forrit í tölvuna) og fylgst alltaf með nýjustu fréttum, bloggfærslum, o.s.frv.

Til hvers? Það er jú mun þægilegra að fylgjast með nýjustu fréttum og bloggfærslum með svona forriti. Það kemur í staðinn fyrir að þurfa alltaf að vera að skoða heimasíðurnar, sem er ekki auðvelt þegar maður skoðar mikið af frétta- og bloggsíðum.

Forritið sem ég nota til þess að gera þetta heitir FeedReader og er ókeypis. Auðvitað er hægt að nota hvaða RSS Feed lesara sem er, en ég valdi þennan vegna þess hversu einfaldur hann er í notkun. Forritið athugar svo eftir breytingum á RSS listunum og kemur með popup þegar RSS'ið er uppfært - ásamt því að forritið setur ólesnu færsluna í "Ólesið efni" eða "Unread news".

Einnig vil ég benda á að Google er með svona feed reader og heitir það Google Reader, og hefur það náð gífurlegum vinsældum.

Skjáskot af FeedReader3 hjá mér


Ég mæli með því að allir kynni sér þetta stórkostlega fyrirbæri, þar sem þetta er án efa framtíðin! Svo er um að gera að bæta mér við hjá ykkur, þar sem ég bætti við RSS tengli hér í valmyndinni til hliðar.


Engar athugasemdir.



Nafn:


Netfang:


Veffang:


Hvað er tólf plús einn?



Skilaboð: