Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist
Skrifað af Gaui þann 16. janúar 2007 - 21:53
Fjöldi lestra: 1294
Athugasemdir ( ):
The Prestige (2006)
Skrifað af Gaui þann 16. janúar 2007 - 21:53
Fjöldi lestra: 1294Robert Angier og Alfred Borden, sem byrja sem hinir mestu mátar og áhugamenn um sjónhverfingar, byrja að vinna saman á sýningum við að þykjast vera áhorfendur sem koma upp á svið og binda hnúta á konu Angiers, áður en hún fer ofan í vatnið og leysir hnútana. Eitthvað klikkar og nær hún ekki að leysa hnútinn sem Borden batt og endar það með því að hún lætur lífið. Eftir það brestur vináttan á milli þeirra þar sem Borden segist ekki vita hvaða hnút hann batt. Þeir fara þá í sitthvora áttina og setja upp sínar eigin sýningar og byrjar þá hörku samkeppni á milli þeirra, sem endar með vígalegri orustu.

Handritið og leikurinn er tær snilld og ekki er hægt að segja að leikararnir séu af verra taginu, þar sem þá skarta engir nema Christian Bale, sem leikur Alfred Borden, Hugh Jackman, sem leikur Robert Angier, Michael Caine sem leikur Cutter og skvísan Scarlett Johansson sem leikur Oliviu.
Christian Bale lék m.a. í Batman Begins og er þekktastur hjá mér sem aðalhlutverkið í American Psycho. Snilldar leikari þar á ferð og fer með hlutverk sitt snilldarlega. Hugh Jackman er held ég mest þekktastur fyrir hlutverk sitt í X-Men myndaröðunum, þar sem hann leikur Wolverine. Hann fer einnig með hlutverk sitt snilldarlega. Michael Caine þekki ég hins vegar best úr Batman Begins, þar sem hann leikur brytann Alfred. Að lokum Scarlett Johansson en hún hefur verið að færa sig æ meir upp á bátinn varðandi leikaraferil sinn og nú þann dag í dag er hún orðin hörku leikkona.
Ég þarf ekki að fara leynt með það að lýsa þessa mynd þá bestu sem komið hefur út á þessu ári, en ég hef ekki séð slíka mynd í allnokkur ár. Þessa mynd verðið þið að sjá og gæti ég vel hugsað mér að kaupa hana á DVD þegar hún kemur út.
5/5
Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0482571/

5/5Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0482571/
Athugasemdir (