Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
Disturbia (2007)
Skrifađ af Gaui ţann 5. september 2007 - 02:24
athugasemdir skrifađar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 1370
Kale missir föđur sinn á leiđinni heim úr veiđitúr, en ári síđar er hann handtekinn fyrir ósćmilega hegđun en sleppur vel vegna föđurmissisins og er dćmdur í ţriggja mánađa stofufangelsi. Í einsemdinni byrjar hann ađ taka meira eftir nágrönnunum sínum og ţeirra atferli, og er ţađ ţá sem hann byrjar ađ gruna nágranna sinn um ađ vera fjöldamorđingi.


Ég verđ nú bara ađ byrja á ţví ađ hrósa myndinni fyrir vel valinn leikarahóp, en er ţá Shia LaBeouf fremstur en hann leikur unglingsstrákinn Kale, sem misst hafđi föđur sinn, en Shia átti einnig ađalhlutverkiđ í Transformers, sem kom út fyrir stuttu hér á landi.

David Morse leikur svo vafasama nágrannann en hann tilheyrir ţví hlutverki fullkomlega. Ég var ađeins byrjađur ađ sjá Anthony Hopkins fyrir mér sem hann en David Morse var alveg kjörinn fyrir ţetta hlutverk.

Margir muna svo eftir Carrie-Anne Moss (Trinity) í Matrix myndunum en hún lék móđir Kale, og stóđ sig bara mjög vel í ţví hlutverki. Ađ lokum leikur Sarah Roemer Ashley „the girl next door“, en skömmu eftir ađ hún flytur í hverfiđ verđur Kale yfir sig hrifinn af henni. Ekki skemmir heldur fyrir hvađ hún er brjálćđislega falleg.

Ég tel einn af ókostum myndarinnar vera sá hvađ hún er róleg fyrir hlé, en svo strax eftir fór spennan ađ aukast og fóru hárin á höfđi manns ađ rísa og ríghélt mađur í sćtisarmana.

Ég mćli hins vegar hiklaust međ ţessari mynd fyrir ţá sem fíla svona vćgar hryllingsmyndir međ ágćtis bregđuatriđum.

Ég fór út tiltölulega ánćgđur og er ţar međ markmiđi bíóferđarinnar náđ.

3/5

Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0486822/




Athugasemdir ():