Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
Mr. Brooks (2007)
Skrifað af Gaui þann 19. september 2007 - 16:50
0 athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 942
Earl Brooks er farsæll fjölskyldufaðir í góðri vinnu og nýtur almennrar velgengni í lífinu, en ekki er allt eins og það sýnist þar sem undir yfirborðinu er Earl kaldrifjaður morðingi sem er vel þekktur í samfélaginu undir gælunafninu fingrafara-morðinginn (e. the thumb-print killer). Earl er í þann mund að leggja þann feril á hilluna þegar það næst ljósmynd af honum við iðju sína, og vandast málið þegar ljósmyndarinn kúgar Earl til þess að fá að koma með í morðleiðangur.


Það eru tvær ástæður fyrir því af hverju ég fór að sjá þessa í bíó, og er önnur sú að ég fékk frítt á hana og er hin sú að Kevin Costner og Demi Moore leika í henni. Ég man alltaf eftir honum í myndinni The Bodyguard með Whitney Houston, þar sem hann lék lífvörð vinsællrar söngkonu. En allavega, grínistinn Dane Cook leikur einnig í þessari mynd, og þó ég sé mikill aðdáandi af kómedíunum hans get ég ekki sagt að ég sé eins mikill aðdáandi hans í kvikmyndabransanum.

Hins vegar fannst mér Kevin Costner smellpassa inn í hlutverk fjölskylduföðursins Earl Brooks. Þó mér finnist Kevin Costner leika almennt mjög vel, þ.á.m. í þessari mynd, þá finnst mér karakterinn hans hálf niðurdrepandi. Það sem gerir karakterinn hins vegar svolítið áhugaverðan er samspil Earls og Marshalls, innri rödd Earls, sem ýtir svolítið undir að Earl drepi alltaf aftur. Í stað þess að heyra bara rödd innra með sér, sér Earl Marshall sem persónu og getur haft eðlileg samskipti við hann, sem gerir myndina svolítið áhugaverða.

Mér fannst hlutverk Demi Moore mjög svo leiðinlegt, þar sem hún leikur þreytta löggu sem er að standa í miðjum skilnaði. Hún á nóg af peningum og því skil ég ekki alveg hvers vegna hún er að hætta lífi sínu daglega í þessum bransa. Hún er ekki að leita hefndar, sem hefði verið mun betri útskýring.

Mér fannst endirinn alveg ömurlegur, en þið sem hafið séð hana getið ábyggilega vel verið sammála mér um að myndin hefði átt að enda í draumnum. Það hefði komið í veg fyrir að endirinn yrði svona dæmigerður.

Að öðru leyti er þessi mynd bara ágætis ræma til áhorfs. Í stað þess að eyða 900 kr. til þess að fara á hana í bíó mæli ég frekar með því að bíða bara þangað til hún kemur út á DVD, þar sem maður er ekki að missa af allt of miklu með að sjá ekki þessa í bíó.

3/5

Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0780571/


Engar athugasemdir.



Nafn:


Netfang:


Veffang:


Hvað er tólf plús einn?



Skilaboð: