Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
Superbad (2007)
Skrifað af Gaui þann 3. október 2007 - 03:03
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 1485
Þeir Seth, Evan og Fogell þrá að komast í mjúkinn hjá þremur aðal gellunum í skólanum og reyna allt til þess að takast það. Seth gerist m.a.s. það djarfur að bjóðast til að kaupa áfengi fyrir partý sem þær eru að halda, og lenda þeir félagarnir í ýmsum ævintýrum í kjölfari af því.


Ég hef sko lengi ætlað að sjá þessa. Ég var m.a.s. það langt leiddur að langa að sjá hana að ég var að spá í að sækja hana á netinu, en sleppti því vegna þess að mér fannst út frá trailernum þetta vera mynd sem maður verður að sjá í bíó - og reyndist það rétt.

Ég hugsa að það sé ekki mikið af efni sem maður hefur séð eftir Greg Mottola, sem leikstýrir myndinni, en samt sem áður hefur maður séð mikið af efni eftir einn handritshöfundinn, Seth Rogen - og líkað vel. Hann er núna nýverið búinn að leika í myndinni Knocked Up, en hann sá einnig um framleiðslu myndarinnar The 40 Year Old Virgin, ásamt því að hafa skrifað handritið fyrir „Da Ali G Show“ með hinum handritshöfundinum, Evan Goldberg.

Einn af aðalleikurunum, Jonah Hill, lék einnig í The 40 Year Old Virgin þannig það er ekki að spyrja hvaðan liðið fyrir myndina er komið. Myndin er líka í anda eins og The 40 Year Old Virgin, þar sem þessi fjallar líka um hreina sveina sem eiga erfitt með að fitta í hópinn.


Að öðru leyti eru leikararnir fínir og tekst þeim vel með hlutverk sín að leika óvinsæla lúða. En þeir sem eiga skilið rós í hnappelduna fyrir að hafa bjargað myndinni eru þeir Bill Hader og Seth Rogen sem fara með hlutverk brjáluðu lögregluþjónanna.

Hvað varðar myndina sjálfa fannst mér hún á köflum allt of róleg og væmin, þó inn á milli hafi ég ekki getað hætt að hlæja. En svona í lokin finnst mér þessi mynd vera svolítið sambland af bæði Harold & Kumar Go to White Castle og Super Troopers, þar sem þær snérust einmitt um lúða og brjálaðar löggur.

En allavega svona í lokin þá mæli ég hiklaust með því að þið skellið ykkur á þessa mynd, þar sem ég get lofað því að hún eigi eftir að kitla í ykkur hláturtaugarnar.

4/5

Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0829482/




Athugasemdir ():