Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
Halloween (2007)
Skrifað af Gaui þann 8. október 2007 - 21:43
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 1315
Eftir að hafa verið dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir hrottalegt morð á fjölskyldu sinni, brýst Michael Myers út af geðveikrastofnuninni og snýr aftur til Haddonfield, þar sem hann leitar uppi litlu systir sína, Laurie.


Það hafa verið gerðar ótal margar Halloween myndir út frá fyrstu myndinni sem John Carpenter skrifaði og leikstýrði árið 1978, en hann hefur í samstarfi við hina ýmsu leikstjóra skrifað og gert ótal mörg framhöld/endurgerðir af henni og kom síðasta Halloween myndin út árið 2002, þar sem Jamie Lee Curtis lék aðalhlutverkið sem litla systir Michael Myers. Í stuttu máli fjallar sú mynd um Laurie, litlu systir morðingjans Michaels Myers, sem er læst inni á geðveikrastofnun og bíður eftir því að stóri bróðir sinn, Michael Myers, komi og klári það sem hann hóf fyrir 17 árum. Sú mynd er sem sagt hálfgert framhald af þessari.

Þessi mynd sem er komin út núna er skrifuð og leikstýrð af Rob Zombie, óða rokkaranum, í samstarfi við John Carpenter, snillinginn á bakvið Halloween myndirnar. Rob Zombie hefur í áraraðir skrifað hlutverk fyrir hinar ýmsu myndir og síðan 2003 hefur hann verið að færa sig meira inn í leikstjórn og handritsgerð. Hann hefur skrifað og leikstýrt myndum á borð við: House of 1000 Corpses, The Devil's Rejects, Grindhouse og nú Halloween. Ég hef að vísu einungis séð tvær myndir með honum en í þeim tókst honum alltaf að skapa ógeð og spennu í kringum nánast hvert atriði.

Aðalleikararnir í myndinni eru ekkert allt of þekktir, en þeir skila svo sem ágætum leik, þrátt fyrir að flestum táningsleikurunum hafi nú ekkert tekist allt of vel að vera sannfærandi. Daeg Faerch, sem leikur Michael Myers þegar hann er ungur, tekst hins vegar mjög vel að leika ungan geðsjúkling. Þessi krakki er m.a.s. meira hrollvekjandi en Michael Myers á fullorðinsárunum.

Fullorðni Michael Myers er leikinn af Tyler Mane, sem er ábyggilega þekktastur í dag fyrir leik sinn sem Sabretooth í X-Men myndinni. Það er eiginlega ekki hægt að dæma leik hans, þar sem hann segir aldrei neitt í myndinni.


Það sem dregur myndina mjög mikið niður er hvað hún er ótrúverðug og langdregin, en það er kannski vegna þess að það er verið að troða of miklu í eina mynd. Varðandi ótrúverðugleikan þá eru nokkrir hlutir sem ég velti fyrir mér og vantar skil á:
  • Af hverju er hann feitur og stór inni á stofnuninni en mjór þegar hann er búinn að brjótast út?
  • Hvernig gat hann brotið járnhlekki?
  • Hvernig fann hann allt í einu samfesting sem smellpassaði á tveggja metra háan mann?
  • Hvernig veit hann alltaf nákvæma staðsetningu á öllum fórnarlömbunum sínum?
  • Hvað vill hann litlu systir sinni?
Það sem dregur myndina hins vegar upp hjá mér er söguþráðurinn og hvernig Rob Zombie tekst að gera morðatriðin flest öll vel ógeðsleg.

Ég hugsa að bernskukaflinn í myndinni sé athyglisverðastur og kaflinn þar sem hann brýst út af stofnuninni. Hitt gerist hægt og er ekkert allt of spennandi.

Á heildina litið er þessi mynd ekkert allt of góð fyrir hryllingsmyndaunnendur og þá sem þekkja vel til Halloween myndanna. Hún er þó töluvert betri og grófari en myndirnar sem eiga að hafa gerst eftir á, bæði þegar Michael Myers fer og heimsækir Laurie á geðveikrastofunina og þegar Laurie ákveður að hefna sín.

Ég verð nú samt að segja að ég bjóst við meiru, en kannski er bara ekki hægt að gera betur?

3/5

Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0373883/




Athugasemdir ():