Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
I Now Pronounce You Chuck & Larry (2007)
Skrifað af Gaui þann 11. október 2007 - 06:18
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 1289
Slökkviliðsmennirnir Chuck og Larry byrja í sambúð og þykjast vera samkynhneigt par til að njóta heimilishagsbóta frá ríkinu.


Leikstjórinn Dennis Dugan hefur bæði leikið í og leikstýrt fjölda grínmynda á borð við: The Benchwarmers, Big Daddy, Happy Gilmore og National Security, svo eitthvað sé nefnt. Hann kom hins vegar ekki nálægt handritsgerð þessara mynda.

Aðalleikararnir eru engir aðrir en Adam Sandler, sem allir ættu að þekkja, Kevin James, sem leikur í og framleiðir gamanþættina The King of Queens. Þokkadísin Jessica Biel leikur svo lögfræðinginn þeirra og Dan Aykroyd leikur yfirmann þeirra í slökkviliðinu - en það eru margir stórgóðir leikarar í þessari mynd.

Myndin er svolítið fyrirsjáanleg og tekst þeim Adam Sandler og Kevin James í raun ekki að skapa trúverðugleikann í kringum það að þeir séu samkynhneigt par í myndinni, en það er einmitt eitt af því sem gerir myndina fyndna. Þeim tekst hins vegar að kítla duglega hláturtaugarnar hjá fólki í salnum.

Þetta er fínasta grínmynd og því mæli ég hiklaust með því að kíkja á þessa - þar sem það er vel hægt að hlæja yfir henni. Þetta er hins vegar ekki ein af þeim myndum sem maður verður að fara á í bíó, þannig þið getið alveg beðið róleg eftir því að hún komi á leigurnar. Fínasta afþreying bara!

3/5

Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0762107/




Athugasemdir ():