Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
Resident Evil: Extinction (2007)
Skrifað af Gaui þann 7. nóvember 2007 - 18:22
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 1281
Útbreiðsla T-veirunnar, sem breytir lifandi verum í blóðþyrsta uppvakninga, hefur nú náð út um allan heim. Hópur fólks sem slapp frá veirunni ferðast í gegnum Nevada í þeirri von um að finna sem flesta eftirlifendur. Í millitíðinni rekst hópurinn á Alice, aðalpersónu myndarinnar, en hún ætlar sér með hjálp hópsins að stöðva ill áform Umbrella fyrirtækisins.


Nú eru að verða komin 5 ár síðan ég sá fyrstu myndina. Ég hef alltaf verið svolítið spenntur fyrir þessum myndum og svolítill aðdáandi í mér. Núna er komin 3. myndin en þær eru allar leikstýrðar af mismunandi aðilum, þó handritið sé alltaf skrifað af sama aðilanum. Fyrsta myndin er hins vegar skrifuð og leikstýrð af manninum sem skrifaði handritið fyrir allar myndirnar, eða Paul W.S. Anderson.

Stjarna myndanna er Milla Jovovich, sem leikur Alice, en hún er búin að prýða aðalhlutverkið í öllum myndunum. Ég er alveg viss um að vinsældir og áhugi fólks á þessum myndum myndi dala ef skipt væri henni út, þar sem það er erfitt að sjá fyrir sér aðra leikkonu í hlutverki hennar.

Það er svolítið um þekkta leikara í þessari mynd en þeirra á meðal má nefna Oded Fehr, sem leikur Carlos Olivera, gamlan félaga Alice, sem lék einnig í annari myndinni, og Iain Glen, sem leikur vísindamanninn, Dr. Isaacs, en hann lék einnig í annari myndinni. Einnig má nefna fleiri þekkta aðila sem leika í myndinni, Ali Larter, sem leikur Claire Redfield sem stjórnar hópleiðangrinum í myndinni, söng- og leikkonuna Ashanti, Mike Epps, ofl.

Á heildina litið fannst mér myndin skila því sem hún átti að skila. Það tókst að bregða mér nokkrum sinnum og hélt myndin mér nokkuð spenntum allan tímann, þ.á.m. þegar þau börðust við uppvakningana. En ég er orðinn verulega þreyttur á endanum í öllum myndunum en mér finnst þeir allir vera eins. Það er ekkert nýtt, ekkert sem kemur manni á óvart. Það dregur myndina niður verulega, en ég mæli alveg með þessari mynd fyrir þá sem hafa gaman af svona hryllings- og zombiemyndum.

Ég verð samt í lokin að segja að 28 myndirnar séu bestar í sínum flokki hvað varðar svona zombie-myndir. Þær skara gjörsamlega fram úr.

3/5

Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0432021/




Athugasemdir ():