Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
Saw IV (2007)
Skrifað af Gaui þann 11. desember 2007 - 18:01
0 athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 912
Jigsaw og lærlingur hans, Amanda, eru bæði dauð, en leikurinn heldur ótrauður áfram. Eftir hrottalegt morð á lögreglukonunni Kerry eru tveir FBI fulltrúar fengnir til þess að aðstoða við rannsókn málsins. En leikurinn vandast þegar tveir lögreglumenn hverfa og lögreglumaðurinn Rigg fær tækifæri til þess að bjarga þeim á innan við 90 mínútum.


Þetta er fjórða myndin í seríunni, en að handriti þessarar myndar koma fremur óþekktir menn, en þeir heita Patrick Melton og Marcus Dunstan. Einnig má til gamans geta að þeir munu sjá um handrit í fimmtu myndinni (Saw V). Leikstjórinn er hins vegar sá sami og síðan í númer tvö, en hins vegar mun leikstjórnin ekki vera í hans höndum í næstu mynd, en það mun vera í höndum David Hackl, sem er búinn að vera aðstoðarleikstjóri Saw III og Saw IV. Saw V mun verða fyrsta myndin sem hann leikstýrir.

Myndina er, að mínu áliti, ein sú besta hingað til. Hún er bæði ógeðsleg, spennandi og ruglandi - allt í einum pakka, sem einkennir einmitt góða Saw-mynd. Ég verð líka að ganga það langt að segja að hún sé ein sú ógeðslegasta, en ef fólk var að kasta upp á Saw III, þá myndi ég sleppa því alfarið að fara á þessa - þar sem hún er sko alls ekki fyrir viðkvæma! Hinar myndirnar voru barnaefni á miðað við þessa.

Það var samt eitt sem mér fannst eytt óþarflega miklu púðri í, en það var fyrrverandi kona Jigsaw, en mér finnst það hafa dregið myndina svolítið niður.

Ég verð einnig að hrósa því hvernig myndin var klippt á milli atriða, en þið verðið bara vitni að því þegar þið farið á myndina. Þetta mun ekki fara fram hjá ykkur. Brilliant!

Myndin byggði samt á góðum og spennandi söguþræði, sem hafði gott framhald frá fyrri mynd (Saw III) og býr til góðan möguleika á framhaldi (Saw V) út frá endanum, þannig í heildina var ég mjög sáttur með þessa.

4/5

Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0890870/


Engar athugasemdir.



Nafn:


Netfang:


Veffang:


Hvað er tólf plús einn?



Skilaboð: