Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
The Dark Knight (2008)
Skrifað af Gaui þann 24. júlí 2008 - 00:32
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 2219
Batman og lögreglustjórinn í Gotham-borg, James Gordon, taka höndum saman með nýjum saksóknara borgarinnar, Harvey Dent, til að stöðva sturlaðan glæpamann sem ber dulnefnið Jókerinn.

ATH! Eftirfarandi rýni gæti innihaldið minniháttar spoilera!


Christian Bale bregður sér aftur í hlutverk leðurblökumannsins góðkunna, en þetta er í annað skiptið sem hann fer með hlutverkið, en hann fór einnig með hlutverkið í Batman Begins sem kom út árið 2005.

Ásamt Christian Bale er stórstjarnan Heath Ledger, sem lést fyrr á þessu ári, en honum tekst stórkostlega upp með hlutverk Jókersins. Það má segja að hann hafi verið gjörsamlega sniðinn fyrir þetta hlutverk. Svo má með sanni segja að hann hafi komist á toppinn áður en hann hafi farið yfir móðuna miklu. Ég trúi því að hann fái Óskarinn fyrir leik sinn.

Á eftir Ledger koma stjörnur á borð við Morgan Freeman, Gary Oldman, Aaron Eckhart og Michael Caine.

Sá sem leikstýrði og sá um handrit myndarinnar var enginn annar en Christopher Nolan, en hann sá einnig um leikstjórn og handrit í Batman Begins, ásamt bróður sínum, Jonathan Nolan. Christopher hefur leikstýrt og skrifað handrit við stórmyndir á borð við The Prestige, Memento, Insomnia og nú The Dark Knight. Þetta má vægast sagt teljast góður ferill hjá leikstjóranum unga.


Myndin er í einu orði sagt stórfengleg. Hún kemur mikið á óvart ásamt því að vera sprengfull af spennu og hasar. Það er ekki að ástæðulausu sem myndin er sögð vera ein af aðalmyndum aldarinnar, þar sem hún fangar mann gjörsamlega og heldur athygli manns allan tímann.

Þó myndin sé nálægt því að vera fullkomin þá má alltaf finna eitthvað að því sem sagt er vera gallalaust.

T.d. finnst mér asnalegt hvernig Two-Face kemur við sögu. Það var bara eins og honum hefði verið troðið þarna inn í til að reyna að gera myndina enn áhugaverðari í heildina. Það hefði verið skárra ef þetta hefði boðið upp á framhald. En hver veit, kannski verður hið ómögulega, mögulegt.

Í myndinni beygir Batman einnig hlaup á byssu/riffli, en þar sem Batman er ekki gæddur neinum ofurkröftum fannst mér þetta ekki raunhæft.

Það síðasta að lokum sem fór svolítið í taugarnar á mér í myndinni var röddin á Bruce Wayne þegar hann klæddist Batman búningnum. Mér fannst hún heldur djúp og ógnvænleg á sinn hátt. Hún var t.d. ekki í samræmi við röddina hans þegar hann var ekki í búningnum.



Þrátt fyrir þessa agnarsmáu galla í myndinni dró ég myndina ekki neitt niður hvað varðaði stjörnugjöfina. Myndin er að mestu leyti óaðfinnanleg og trónir hún hiklaust á topp5 listanum yfir bíómyndir sem ég hef séð undanfarin ár.

Ég mæli sterklega með þessari, þar sem þarna er á ferð kvikmynd sem þið megið engan veginn missa af!

5/5

Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0468569/




Athugasemdir ():