Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist
Skrifað af Gaui þann 13. október 2008 - 02:04
Fjöldi lestra: 1206
Athugasemdir ( ):
Taken (2008)
Skrifað af Gaui þann 13. október 2008 - 02:04
Fjöldi lestra: 1206Bryan er áhyggjufullur faðir sem starfaði áður hjá Bandarísku leyniþjónustunni, en er nú sestur í helgan stein. Hann þarf hins vegar að rifja upp ýmislegt tengt gamla starfinu þegar dóttur hans er rænt af óprúttnum aðilum, sem hafa tekjur af því að dópa ungar stúlkur og neyða þær út í vændi.

Liam Neeson er alveg stórkostlegur í þessu föðurhlutverki og fer með hlutverkið af stakri prýði. Sama má segja um hina leikarana, en það er hin undurfagra Famke Janssen sem fer með móðurhlutverkið í þessari mynd. Að lokum fer Maggie Grace með hlutverk dóttirinnar, sem er eflaust best þekkt sem Shannon í Lost þáttunum.
Atburðarásin í myndinni er rosalega hröð, en mér finnst það vera einn af ókostum hennar, þar sem hún verður örlítið ótrúverðug í kjölfarið. Einnig hversu auðvelt var fyrir Bryan, faðirinn, að ná dóttur sinni úr klóm illmennanna. En þetta er náttúrulega bara spurningin um innri og ytri tíma.
Einnig finnst mér Maggie Grace takast illa upp með hlutverk dótturinnar Kim, þar sem mér finnst hún vera heldur ótrúverðugur 17 ára unglingur, þar sem hún er jú í raun og veru að nálgast þrítugsaldurinn.

Hins vegar, burt séð frá þessu, var myndin rosalega góð. Hún var þrungin spennu, en það var spenna út alla myndina, og gat maður varla rifið sig frá skjánum.
Mér finnst handritið vera vel skrifað og leikstjórnin ekkert síðri. Auk þess sem að myndatakan og klipping voru góð. Ekkert að í þeim efnum, enda fær myndin alveg óspart lof frá mér og mæli ég hiklaust með henni.
4/5
Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0936501/

4/5Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0936501/
Athugasemdir (