Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist
Skrifað af Gaui þann 19. desember 2008 - 20:04
Fjöldi lestra: 1056
Athugasemdir ( ):
The Day The Earth Stood Still (2008)
Skrifað af Gaui þann 19. desember 2008 - 20:04
Fjöldi lestra: 1056Verur utan úr geimnum hafa tekið þá ákvörðun að eyða öllu lífi á jörðinni þar sem mannkynið er á góðri leið með að eyða sjálfu sér með núverandi lifnaðarháttum. Hópur sérhæfðra rannsóknar- og vísindamanna er kallaður saman og fenginn það verkefni að koma í veg fyrir heimsendi.

Það hefði ábyggilega verið betra að hafa séð myndina frá 1951 sem þessi var búin til eftir, til þess að geta borið þær saman. En hvað um það.
Keanu Reeves fer með hlutverk geimverunnar Klaatu og gerir það bara með stakasta prýði. Hann er líklegast frægastur fyrir leik sinn í Speed og Matrix myndunum en hefur ekki gert neitt stórkostlegt eftir þær.
Ásamt Keanu fer Jennifer Connelly með hlutverk geimlífeindafræðingsins Helen Benson, en hún er einmitt ein úr liði rannsakendanna og vísindamannanna sem eru fengnir til að koma í veg fyrir þetta.
Það var svolítið skrítið að sjá Kathy Bates í hlutverki hægri handar forseta Bandaríkjanna eða í hlutverki varnarmálaráðherrans, en það fór ekki alveg nógu vel í mig. Ég hef satt að segja aldrei verið mikill aðdáandi hennar og hefur hún alltaf farið svolítið í taugarnar á mér.
Fyndnast var að sjá John Cleese í hlutverki prófessors en hann er eflaust best þekktur hér á landi fyrir að leika í Kaupþing auglýsingunum á sínum tíma.
Myndin í heild sinni er bara ágæt til að sjá einu sinni. Hún nær upp ágætri spennu fyrir og eftir hlé en á köflum gerist ekkert og maður verður bara hálf syfjaður.
Á köflum var háttsemi karakteranna í myndinni svolítið típísk og myndin svolítið fyrirsjáanleg í kjölfari af því.
Þó hún sé sneisafull af flottum leikurum, vel gerðri grafík og flottum brellum og atriðum, er eins og hún nái ekki alla leið þangað sem hún ætlar sér.
2/5
Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0970416/

2/5Upplýsingar um myndina:
http://www.imdb.com/title/tt0970416/
Athugasemdir (