Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist
Skrifað af Gaui þann 4. maí 2010 - 23:58
Fjöldi lestra: 5535
Athugasemdir ( ):
HTC Google Nexus One
Skrifað af Gaui þann 4. maí 2010 - 23:58
Fjöldi lestra: 5535HTC Google Nexus One er rosalega vel hannaður. Hann er tiltölulega lítill, léttur og nettur, með rosalega fínum 3,7 tommu WVGA skjá, frábærri 5 megapixel myndavél með autofocus og LED flassi. Síminn er með 1 GHz Snapdragon örgjörva sem er alveg ótrúlegt þar sem þegar ég byrjaði að fikta í tölvum ungur að árum þótti 300 MHz örgjörvi með því flottasta á markaðnum. Þetta er því engin smá þróun á nokkrum árum og það að GSM sími skuli vera með meira en þrisvar sinnum hraðari örgjörva heldur en fyrsta tölvan mín var með, vekur svolitla undrun.

Einn helsti kosturinn við símann er að hann er tengdur öllu sem Google gerir og sér um. Hvort það sé tölvupóstur (Gmail), gögn (Google Docs), tengiliðir (Google Contacts), þýðingar (Google Translate), kort (Google Maps) o.s.frv. Þetta er allt saman svo þægilegt.
Allur tölvupósturinn minn er syncaður (samhæfður) við símann minn þannig ég get lesið hann hvar og hvenær sem er ásamt því að síminn lætur mig vita þegar mér berst nýr tölvupóstur.
Allir tengiliðirnir mínir í símaskránni eru syncaðir (samhæfðir) við Google Contacts þannig ég er alltaf með símaskránna mína á einum og sama staðnum. Ég get líka breytt upplýsingum um tengiliðina á netinu þannig ég þarf ekki einu sinni að hafa símann á mér. Auk þess er hægt að synca símann við Facebook þannig allar upplýsingar um tengiliði í símaskránni eru samhæfðar við upplýsingarnar um viðkomandi á Facebook. Þetta er ótrúlega sniðugt.
En fyrir utan öll Google forritin er síminn frekar hrár. Hins vegar það sem gerir lífið auðveldara og skemmtilegra eru öll forritin í Android Market sem hægt er að sækja fyrir símann. Þau eru að sjálfsögðu flest öll frí þannig maður getur stútfyllt símann af ýmislegum nothæfum og skemmtilegum forritum. Ég fer nánar í forritin, sem ég er með á símanum mínum, hér neðar. Mörg þeirra er einfaldlega algjör nauðsyn að nota.
Live Wallpaper
Þetta er svo sniðugt að ég á varla orð til að lýsa því. Þetta er að vísu gjörsamlega gagnslaust en þetta setur rosalega flott lúkk á símann. Þetta er sem sagt bara stuðningur fyrir hreyfibakgrunn. Ég er núna með Matrix Digital Rain þannig alltaf þegar ég er á "desktopinu" í símanum sé ég þetta svokallaða digital rain á hreyfingu. Algjör snilld! Svo er hægt að ná í mörg önnur svona live wallpaper, en þetta wallpaper heillaði mig mest.
Google Voice
Þetta er að vísu ekkert sérlega nothæft hér á Íslandi þar sem móðurmálið okkar er ekki enska en þetta er algjör snilld ef þú þarft að skrifa enskan texta. Þú þarft nefnilega ekki lengur að skrifa ensku í símanum, þú bara lest eitthvað inn á símann á ensku og síminn yfirfærir það yfir í texta. Svo er líka hægt að lesa inn texta og síminn þýðir það yfir á annað tungumál, en það notar Google Translate, sem er líka algjör snilld.
Multi Touch
Áður en ég fékk símann í hendurnar var ekkert multitouch mögulegt á símanum. En Google bættu úr því og sendu út uppfærslu sem leyfði multitouch þannig þetta var ekki vandamál sem varði lengi. Ég nota satt að segja ekki mikið multitouch nema bara þegar ég er að zooma myndir og texta á vefsíðum. En möguleikinn er nú til staðar, sem er snilld.
Þetta er að vísu svolítið gallað þar sem ef maður fer yfir ásana með sitthvorum puttanum ruglast snertiskjárinn. Þetta hefur hins vegar ekkert pirrað mig hingað til og vænta má lagfæringu á þessu vandamáli með næstu Android uppfærslu (áætluð 19. maí nk.).
Ég veit ekki hvort þetta tengist þessum galla eitthvað en til að ýta á aðgerða takkana (neðst á snertiskjánum) þarf maður að ýta örlítið ofar en takkarnir eru staðsettir. Mér fannst þetta verulega pirrandi fyrst en vandist þessu og ýti núna alltaf á rétta staði.
Ég er satt að segja ekki búinn að rekast á marga galla í símanum en það eru örfáir hlutir sem fara svolítið í taugarnar á mér. En enn og aftur, ég er mjög óvanur Android stýrikerfinu þar sem þetta er fyrsti Android síminn minn. Þetta eru bara nokkrir hlutir sem mér finnst mættu fara betur.
Task Manager
Fyrir það fyrsta er það að Android býður ekki upp á möguleika á að slökkva á forritum. Ef það er hægt að slökkva á forriti er það möguleiki sem forritið/appið sjálft býður upp á, en ekki Android. Þetta finnst mér vera mjög mikill mínus, þar sem það eru ýmis forrit sem ég vil geta slökkt á eftir að ég er búinn að nota þau. Til dæmis get ég nefnt eBuddy appið sem ég nota sem MSN client og alla leiki sem ég hef sett upp í símanum.
Ég hef nokkrum sinnum spurt út í þetta en fæ alltaf sömu svör til baka. Og þau eru að Android stýrikerfið sér sjálft um að slökkva á forritum út frá minnis- og batterísnotkun. Ég er ekki alveg nógu hrifinn af þessu þar hingað til hefur Android ekki slökkt á neinum forritum hjá mér, þó þau hafi verið að keyra í marga klukkutíma óhreyfð. Það er líklegast vegna þess að síminn hefur ekki þurft meira minni fyrir önnur forrit, en þetta eyðir hins vegar batteríinu í ekki neitt.
Ég er hins vegar kominn með ágætis lausn sem ég er tiltölulega sáttur við. Ég náði í app sem heitir Task Manager. Þetta er lítið forrit sem situr alltaf í notification barnum efst í símanum og drepur öll þau forrit sem þú þarft ekki að nota lengur og vilt slökkva á. Mjög sniðugt apparat þar sem ég VEIT að síminn eyðir meira batteríi heldur en ella þegar kveikt er á forritum sem þú ert ekki að nota lengur.
Task Switcher
Í gamla Nokia 5800 XpressMusic símanum mínum gat ég multi-taskað, sem sagt verið með mörg forrit opin í einu, og flakkað á milli þeirra. Ef ég vildi fara úr MSN og kíkja aðeins á Facebook gat ég gert það mjög auðveldlega. Mjög sniðugur og þægilegur task switcher í þeim síma, en hvað varðar Nexus One og Android stýrikerfið yfir höfuð er enginn task switcher. Ótrúlegt en satt.
Það eina sem er (sem ég og eflaust allir nota sem task switcher) er "recent apps", sem virkar eins og task switcher en í staðinn fyrir að sýna forrit sem eru að keyra, sýnir hann bara síðustu sex forrit sem hafa verið notuð (þó þau séu ekki einu sinni lengur í gangi). Þannig ef þú ert búin að hreyfa sex forrit og ætlar svo að skipta yfir í sjöunda forritið sem er að keyra, er það ekki hægt. Þetta tengist auðvitað þessari "ekki hægt að slökkva á forritum" virkni í Android þar sem ef svona task switcher væri í Android myndi hann alltaf birta ÖLL forrit þar sem síminn slekkur ekki á neinum forritum (fyrr en honum vantar minni).
Ég hef hingað til ekki lent í svakalegu veseni með þetta, þar sem betur fer hef ég aldrei þurft að nota fleiri en sex forrit í einu, en ef til þess kæmi finndist mér þetta verulega pirrandi.
Íslenskt lyklaborð
Fyrst þegar ég fékk símann var ég skíthræddur um engan stuðning fyrir íslenskt/skandinavískt stafasett. En það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því, þar sem því var reddað með Scandinavian Keyboard. Ég er búinn að vera að nota þetta síðan ég fékk símann og aldrei klikkað. Ég er mjög ánægður með þetta forrit/viðbót fyrir Android.
MP3 Store
Það er eitt sem böggar mig rosalega við þennan síma og það er einhver Amazon MP3 netverslun sem er ekki hægt að losna við án þess að "roota" símann, sem sagt "aflæsa" honum. Ég skil ekki alveg af hverju það er ekki hægt að fjarlægja þetta úr símanum. Ég hef nákvæmlega ekkert með þetta að gera.
Bluetooth
Hingað til hef ég ekki fengið Bluetooth til að virka í símanum án þess að nota auka forrit til þess að senda/sækja gögn. Þetta pirraði mig mjög mikið fyrst en eftir að ég fór að venjast því að nota Bluetooth transfer tól pæli ég ekkert í þessu lengur. Ég hugsa nú samt að þetta verði lagað í næstu uppfærslu af Android.
Ég vildi bara benda ykkur á nokkur forrit sem ég álít vera mjög nothæf og mikilvæg í þessum síma/Android símum. Ef þið eruð með uppástungur að fleiri forritum endilega skrifið nafnið á þeim í athugasemdunum hér fyrir neðan og segið hvað þau gera/hvernig þau eru nothæf.
Shazam
Eftir að hafa notað þetta forrit alveg síðan ég fékk símann gæti ég ekki án þess verið. Þetta sem sagt hlustar á brot úr lagi (í útvarpi, tónlistarspilara, o.s.frv.), ber bútinn saman við risastóran lagagrunn og finnur lagið sem verið er að spila. Þetta er svipað og TrackID í Sony Ericsson símum. Ég hef notað þetta margoft og þetta hefur satt að segja ALDREI klikkað. Ég var um daginn að prófa þetta og spilaði einhver tælensk og grísk lög og hún fann allt. Magnað fyrirbæri!

Facebook
Þetta app er stórsniðugt og svipar mjög til Facebook appsins sem til er fyrir iPhone. Þetta er alltaf í stöðugri þróun og eru alltaf að koma nýjar og nýjar uppfærslur þar sem maður getur gert nánast allt það sama og á Facebook.com. Það eru nokkrir hlutir sem pirra mig þó og það er það að appið býður upp á að checka sjálft eftir status updates, notification updates og message updates en lægsti tíminn sem líður á milli eru 30 mínútur. Fyrir Facebook fíkla eins og mig væri ég mjög ánægður með 5-10 mínútur. Það vantar líka að geta farið inn í status og lesið athugasemdir án þess að hún skipti yfir í vafra til að skoða. Annars er þetta alveg frábært app!

EStrongs File Explorer
Rosalega þægilegur skráarstjóri þar sem þú hefur möguleika á því að skoða local skrár, tengjast FTP eða jafnvel yfir LAN (Samba). Ég nota þetta stanslaust. Algjör skylda fyrir Android notendur!

Bluetooth File Transfer
Eins og ég nefndi hér fyrir ofan virkar ekki að sækja/senda gögn yfir Bluetooth nema með þessu forriti. Þess vegna er þetta forrit algjört þarfaþing.

eBuddy
Persónulega finnst mér þetta vera besta forritið til að tengjast MSN. Og já ég veit að eBuddy.com MSN clientinn með vefviðmótinu er til en þetta er sér forrit fyrir Android síma. Mér finnst rosalega þægilegt að spjalla í þessu. Contact listinn raðast annað hvort eftir online/grúppum eða í stafrófsröð. Svo er hægt að fela þá sem eru offline. Algjör snilld, mæli hiklaust með þessu.

AndChat
Án efa lang besti IRC clientinn fyrir Android. Styður tengingar við marga þjóna og er hreinlega awesome í alla staði!

Task Manager
Ég fjallaði örstutt um þetta forrit hér fyrir ofan. En þetta gerir bara það sem það heitir; Drepur forrit sem þú vilt drepa. Ég er stundum svo paranoid að þegar ég er ekki með hleðslutæki nálægt mér og er ekki á leiðinni heim á næstunni drep ég öll forrit sem ég þarf ekki, bara til að spara batteríið eins mikið og mögulegt er. Og auðvitað slekk ég í leiðinni á WiFi og GPS.

3G Watchdog
Ég nota þetta app til að fylgjast með 3G notkun minni. Hægt er að stilla hvað limitið sé hvern dag/viku/mánuð og láta forritið vita þegar þú nálgast eða ferð yfir þau mörk. Að vísu er ekki hægt að sía út innanlands traffík frá utanlands, en mér finnst það vera nauðsynlegt þar sem símafyrirtæki hérlendis rukka ekkert fyrir innlenda 3G traffík.

Battery Indicator
Þetta birtir bara uppi í notification-bar hversu mörg prósent eru eftir af batteríinu. Mjög einfalt app en líka mjög nauðsynlegt!

Documents To Go
Þetta er eiginlega bara Office pakkinn fyrir Android, opnar flest allt sem Office opnar; Word, Excel, PowerPoint, o.s.frv. Algjört þarfaþing!

Handcent SMS
Það er eitt sem ég elska við iPhone og það er hvernig SMS samtöl birtast og eru sett upp. Í þessu snilldar SMS appi er hægt að líkja eftir iPhone uppsetningunni á SMS. Rosalega þægilegt!

PDF Viewer
Þetta app gerir bara eitt og gerir það helvíti vel. Mjög basic PDF lesari.

Terminal Emulator
Þetta er algjört must fyrir þá sem kunna á skel í Linux. Þetta er að vísu mun nothæfara ef síminn er rootaður en annars mjög skemmtilegt og sniðugt tól.

Ultrachron Lite
Sáraeinföld skeiðklukka og teljari.

3banana
Rosalega einföld skrifblokk til þess að geyma eitthvað sem maður þarf að muna, o.s.frv. Ég nota þetta mjög oft!

Uninstaller
Rosalega þægilegur uninstaller fyrir app. Sýnir þér hvað hvert app tekur mikið pláss ásamt því hvenær þú settir það upp. Leyfir þér líka að leita.

Where's My Droid
Þetta er hugsa ég eitt mesta snilldar tól sem ég hef rekist á fyrir Android. Þetta gerir þér kleift að senda SMS í símann þinn með einhverju ákveðnu "lykilorði" og síminn byrjar þá að hringja á fullu. Virkar m.a.s. þótt síminn sé silent! Einnig hægt að tengja við innbyggða GPS í símanum og finna símann út frá því. Algjör gargandi snilld!

HelixLauncher 2
Ég setti þetta upp í forvitnisskyni og sé sko alls ekki eftir því! Þetta leyfir þér að setja icon við hliðina á "main menu" takkanum þínum neðst niðri (þar sem þú ferð inn í listann yfir öll forritin). Auk þess með þessu geturu snúið símanum og desktopið/homescreenið snýst með. Svo bætir þetta við 2 extra homescreens. Þannig í stað þess að vera með 5 homescreens ertu með 7. Ég nota núna 4 homescreens og á í stökustu erfiðleikum með að fylla þá. Ég hugsa að ég muni eiga mjög erfitt með að fylla 7 homescreens.
En í dag nota ég einn homescreen undir leiki, annan undir filesystem tengd forrit (ES File Explorer, Bluetooth File Transfer, o.s.frv.), þriðja undir widget þar sem ég get kveikt/slökkt á WiFi/3G/GPS og lækkað/hækkað hljóðin í símanum ásamt því að geta stjórnað birtunni á skjánum í fljótheitum. Svo fjórði homescreeninn nota ég í öll forritin sem ég nota mest; Ultrachron Lite, Gallery, Camera, Terminal Emulator, Uninstaller, AndChat, eBuddy, YouTube, Shazam, Facebook, 3banana, Contacts og Market.
Svo iconin við hliðina á "main menu" takkanum neðst niðri er ég með: Phone, Handcent SMS, Browser og Gmail.
Algjört snilldar forrit þetta HelixLauncher, ég mæli sterklega með því!
Önnur forrit
Það eru ýmis fleiri forrit/tól í símanum en þá er ég að tala um tólin sem koma með símanum. Það eru t.d. Maps sem notar Google Maps, YouTube, Gmail, Browserinn, Gallery, ofl.
Ég vil samt hrósa Browsernum mest. Í honum er hægt að vinna með marga glugga sem er algjört must á svona multi-task símum. Einnig er algjör snilld að geta share'að vefsíðum sem maður er að skoða. Og þá er í boði að share'a þeim á: Facebook, Gmail eða í SMS. Allt sem þú þarft. Hægt er að zooma inn texta á vefsíðum með multi-touch pinch aðferðinni (sem fengin var að láni frá Apple) og tvísmella á skjáinn til að fá síðuna í fixed-size sem er mjög þægilegt of fljótlegt þegar þú nennir ekki að pinch-zooma og stilla síðuna þannig af.
Það er hins vegar eitt sem mér finnst vanta í Browserinn og það er "view source" fítus. Annars er hann mjög nálægt fullkomnun. Ég er allavega ekkert á leiðinni að fara að setja upp Opera Mini.
Over all er síminn algjör draumur og kemur sterkur á móti iPhone 3GS. Hann meira að segja toppar iPhone'inn á mörgum sviðum, þ.á.m. hvað varðar skjástærð, upplausn, myndavél, örgjörvastærð, vinnsluminni, batterísendingu í tali, o.s.frv. En sjá má mynd hér þar sem Nexus One er borið saman við iPhone 3GS, Palm Pre og Motorola Droid.
Þar sem ég er svo paranoid yfir að rispa símann ákvað ég að panta rispvörn á allan símann. Ég fékk mér full-body vörn frá Clear-Coat sem ég mæli alveg hiklaust með! Að vísu var ég í tvo tíma að setja hana "fullkomið" á en það borgaði sig þó.
Ég pantaði einnig desktop dock og var ég mjög sáttur með það þangað til ég setti filmuna á allan símann, þar sem nú passar síminn ekki lengur í dockið! Þannig bara svo þið vitið, þið sem eigið Nexus One og langar í desktop dockið, þá á ég það nánast ónotað og neyðist til að selja það.

HTC Google Nexus One
*** KOSTIR ***

*** ÓKOSTIR ***

*** FORRIT ***

*** LOKAORÐ ***

Athugasemdir (