Trivia orðarugls-afruglari
Skrifað af gaulzi þann 21. apríl 2010 - 05:09
Fjöldi lestra: 1021Þetta fall ber saman ruglað orð við óruglað orð og er sérstaklega hentugt til að svindla í orðaruglinu á #trivia.is
Notkun:
berasaman('rugl', 'gurl');
Notkun:
berasaman('rugl', 'gurl');
1 | | |
Örlítið endurbættur kóði:
<?php
function checkwords( $rugl, $ord ) {
if( strlen( $rugl ) != strlen( $ord ) ) {
return false;
break;
}
$ord_arr = preg_split('//', $ord, -1, PREG_SPLIT_NO_EMPTY);
$rugl_arr = preg_split('//', $rugl, -1, PREG_SPLIT_NO_EMPTY);
sort( $ord_arr );
sort( $rugl_arr );
if( $ord_arr == $rugl_arr )
return true;
else
return false;
}
?>
Var einmitt að bíða eftir athugasemdum áður en ég færi að setja inn eina. Einnig langaði mig að reiða fram lausn áður en ég færi að opna kjaftinn. Þar sem ég nenni ekki að útfæra lausnina núna ætla ég að koma með tillögur.
* Nota BÍN (bin.arnastofnun.is) þar sem það orðmyndasafn spannar talsvert fleiri orð en þessi orðalisti.
* Vera búinn að forvinna orðalistann svo hægt sé að framkvæma eina létta uppflettingu. Núna er það þannig að ef orðið finnst ekki mun kóðinn fara í gegnum allan orðalistann. Einnig fer hann eingöngu að fyrsta tilvikinu og hættir sem gerir viðkomandi ekki kleift að leita að öðru orði ef ágiskunin var röng.
* Forvinnan ætti að vera framkvæmd þannig að hver stafur kæmi fyrir, í stafrófsröð, og síðan fjöldi tilvika af honum, allt skráð í lágstöfum. T.d. myndi orðið ‚PHP‘ fá merkinguna h1p2 (eða ‚hp2‘) og skírnarnafnið mitt (Svavar) myndi fá ‚a2r1s1v2‘ (eða ‚a2rsv2‘). Seinna formið er möguleg stytting til að fækka stöfum.
* Til að leita í grunninum myndi stafaruglið vera sett á forunna sniðið og síðan leitað að því. Niðurstaðan í leitinni ætti að innihalda öll orð í orðalistanum sem stafaruglið gæti staðið fyrir.

2 athugasemdir skrifaðar -