Gaui.is - Blog
	<description><![CDATA[Jæja þá er búið að stíga fyrsta skrefið í átt að netlöggu og ritskoðun internetsins á Íslandi. Ástæðan fyrir þessum aðgerðum var vegna eineltis- og meiðyrðamála á síðunni Ringulreið, sem innihélt m.a. myndir, upplýsingar og meiðyrði um krakka sem voru ekki orðnir sjálfráða.
Mér finnst fjarskiptafyrirtækin, bæði Síminn og Vodafone, vera að fara úr hlutverki sínu sem fjarskipta- og samskiptaaðilar yfir í það að vera einhvers konar dómari á hvað sé okkur Íslendingum við hæfi á internetinu. Ég kýs að sjá um að velja og hafna sjálfur hvað það er sem ég skoða á netinu.
Þetta mál brennur á vörum flestra sem nota internetið ekki einungis til að lesa fréttirnar og er mikill hiti í mönnum - þ.á.m. mér. Þó mér sé alveg sama um þessa tilteknu síðu er það bara það að það er núna búið að setja fordæmi um að það sé í lagi að ritskoða internetið.
Nú þegar búið er að stíga fyrsta skrefið og setja fordæmi fyrir ritskoðun internetsins er ekkert því til fyrirstöðu að aðrir aðilar/samtök geti farið fram á að láta loka öðru á netinu. Til dæmis SMÁÍS og STEF hvað varðar Torrent síður og aðrar síður sem leyfa fólki að niðurhala höfundarréttarvörðu efni, Feministafélagið hvað varðar klám, o.s.frv.
En það hefur verið svolítið deilt um það hvort það sé í raun verið að brjóta í bága við fjarskiptalög- og reglugerðir.
Skv. 1223/2007 7. gr. um vernd, virkni og gæði IP fjarskiptaþjónustu:
"Búnaður og samskiptahættir er stýra IP fjarskiptaumferð, skulu vera varin á sem æskilegastan máta gegn hvers konar þjónustusynjun og röngum leiðar­upplýsingum."
Skv. 1221/2007 5. gr. um vernd upplýsinga í almennum fjarskiptanetum:
"Fjarskiptafyrirtæki skulu tryggja að viðskiptavinir þeirra njóti verndar gagnvart hlustun, hlerun, geymslu eða annars konar hindrun eða vöktun fjarskipta, þ.m.t. skilaboða og auðkenna, sem fara um fjarskiptanet þeirra, nema að slíkt fari fram með samþykki viðskiptavinanna eða samkvæmt heimild í lögum."
	<description><![CDATA[Þá er Eurovisionhelgin liðin og skemmti ég mér stórvel. Ekki skemmir heldur gengi Jóhönnu í keppninni en mér fannst hún standa sig frábærlega og var landi okkar til sóma!
Við strákarnir hittumst heima hjá Gaua bróðir Gumma þar sem við grilluðum, drukkum áfengi og horfðum á keppnina í heild sinni. Þetta var alveg ótrúlega gaman og vil ég bara þakka Gaua kærlega fyrir að hafa nennt að halda þetta.
Eftir að keppnin var búin var ákveðið að skella sér í bæinn, en ég hef sjaldan séð jafn margt fólk niðri í bæ. Síðast þegar ég sá þetta svona var á Menningarnótt.
Ég kíkti aðeins á Oliver en entist voða lítið þar vegna loftleysis, þar sem staðurinn var alltof troðinn.
Ég rölti þá út til að fá mér aðeins ferskt loft og rakst þá á Arnþór kunningja minn, en við kíktum á Apótekið þar sem ég hitti Rakel.
Við enduðum svo að lokum á London/Reykjavík, þar sem við eyddum kvöldinu í brjáluðum dansi. Ég, Rakel, Grétar, Solla og Arnþór. Brjálað stuð!
Við Grétar enduðum svo í börger á BSÍ hjá Önnu Lúlú um morguninn, þar sem allt annað var lokað. Svo kom Ágústa og sótti okkur og skutlaði okkur heim.
Frábært kvöld en því miður klikkaði ég á því að taka myndavélina með mér svo ég gæti fest kvöldið á filmu. Ansans vesen!
Hins vegar náðist þessi mynd af okkur og tók Sveinbi Superman hana...
Arnþór, Rakel, Solla og ég
Úrslitin fóru allt öðruvísi en ég hafði spáð. En það sem breytir öllu hvað varðar fyrirkomulag keppninnar núna er það að hvert land er með símakosningu fyrir fólkið í landinu ásamt því að það er með einn dómara sem hefur 50% vægi á móti símakosningunni. Þetta er algjör snilld og kemur mikið í veg fyrir landaklíkuskap.
En helstu vonbrigðin varðandi keppnina voru þau hversu mikið Normaðurinn rústaði keppninni, en mér fannst lagið ekkert spes og hann alls enginn söngvari. En þetta lag er jú grípandi og límist gjörsamlega við heilann.
Alexander Rybak fyrir hönd Noregs, sigurvegari Eurovision 2009
Vonbrigðin voru líka þau hversu neðarlega Malta lenti, en mér fannst það lag rosalega flott og rosalega vel flutt hjá henni. Það var samt örlítið bjartsýni hjá mér að spá því í 4. sæti.
En engu að síður er gaman að þessu. Til hamingju Ísland!
Mikið hefur verið rætt um hvort að Jóhanna eigi skilið að fá Fálkaorðuna fyrir afrek sitt í Eurovisionkeppninni, þar sem jú allir í handboltalandsliðinu okkar voru sæmdir Fálkaorðunni fyrir að lenda í 2. sæti á Ólympíuleikunum í fyrra.
Því spyrja margir sig, af hverju ætti landsliðið að fá Fálkaorðuna þegar það lendir í 2. sæti en ekki Jóhanna þegar hún lendir í 2. sæti í Eurovision. Mér finnst alveg réttlátt að Jóhanna verði sæmd orðunni líka, þar sem þetta er svipað afrek og hjá landsliðinu og finndist mér það mismunun ef hún hlyti ekki orðuna fyrir afrek sitt.
En ef Jóhanna fær orðuna, ætti Selma þá ekki líka að fá eitt stykki orðu, þar sem hún lenti jú í 2. sæti árið 1999 með lagið All Out Of Luck.
Fáir vita að Fálkaorðan skiptist í 5 stig þannig fyrsta stigið sem handboltastrákarnir hlutu er ekki ýkja merkilegt. Jóhanna og Selma ættu því að sjálfsögðu að hljóta sömu orðuna!
Hin íslenska fálkaorða
"Fyrsta stig orðunnar er riddarakrossinn og flestir orðuþegar eru sæmdir honum. Annað stigið er stórriddarakross, síðan stórriddarakross með stjörnu og loks stórkross. Æðsta stig orðunnar er keðja ásamt stórkrossstjörnu en hana bera einungis þjóðhöfðingjar."
http://forseti.is/Forsida/Falkaordan/
Ég er kominn með vinnu í sumar, en ég sótti um í Húsasmiðjunni um daginn og var ráðinn á staðnum. Þvílíkt ánægður með það og er bara gaman að vinna með þessu fólki þarna. Heppilegt líka að ég þekki alla sem eru að vinna þarna með mér. Bara gaman!
Þetta er svolítið frábrugðið frá því sem ég er vanur í Súðarvoginum þegar ég var þar tvö sumur, en þetta er fljótt að venjast held ég. Ég er aðeins byrjaður að komast inn í þetta.
En maður er þó með vinnu og ekki er það slæmt á tímum sem þessum! ...]]></description>
	<description><![CDATA[Ég horfði á báðar undankeppnirnar núna í ár og verð nú bara að segja að atriðin í seinni undankeppninni heilluðu mig mun meira heldur en í þessari fyrri. En það eru mörg mjög góð lög núna í ár og því er keppnin hörð.
Ég tel að það séu nokkur lönd sem munu gera okkur mjög erfitt fyrir að vinna keppnina núna í ár, og nánast ómögulegt. Það er til að byrja með Grikkland og þar á eftir koma Malta, Úkraína og Tyrkland.
Ef ég ætti að giska á topp 5 myndi ég giska á að það væri eitthvað á þessa leið...
1. Grikkland (Sakis Rouvas - This Is Our Night)
2. Tyrkland (Hadise - Düm Tek Tek)
3. Úkraína (Svetlana Loboda - Be My Valentine)
4. Malta (Chiara - What If We)
5. Ísland (Yohanna - Is It True)
Ég hef hins vegar eðlishvöt og fylgi henni oftast þegar um söng er að ræða, og það er hvort ég fái gæsahúð. Í þessari keppni voru tvö lönd sem létu mig fá gæsahúð, og voru það Ísland og Malta. Þannig ef þetta væri Gauavision væri klárt mál hver hreppti vinninginn þar.
En hvort sem að við vinnum eða töpum þá er aðalmálið að við komumst áfram í aðalkeppnina. Svo er líka aðalmálið bara að reyna að skemmta sér. En það að Jóhanna hafi komist áfram gerir helgina 10x skemmtilegri og meira spennandi. ...]]></description>
	<description><![CDATA[Það hefur fátt verið uppi á könnunni hjá mér upp á síðkastið annað en að læra fyrir þessi lokapróf sem ég er búinn að vera í. Ég tók alla síðustu helgi í að læra, þannig ég var nokkuð ánægður með árangurinn í prófunum. En það er sko ekkert grín að vera í íslensku 403 og 503 á sama tíma og þurfa að taka lokapróf í báðum áföngunum og fá einungis einn dag á milli prófanna til að læra/rifja upp.
En ég er allavega búinn núna. Ég er ekki búinn að fá einkunnirnar úr prófunum en fékk það staðfest að ég væri búinn að ná íslensku 403, og þar sem mér fannst mér ganga verr í því prófi heldur en í 503, geri ég ráð fyrir því að ég hafi náð 503 líka.
Svo er útskriftin mín 23. maí nk. sem þýðir að ég þarf að fara að byrja að skipuleggja veisluna mína, hvort ég ætli að halda risastóra veislu eða hvað. Ég þarf líka að muna að ná í stúdentahúfuna mína. Það væri frekar asnalegt að vera húfulaus í útskriftarathöfninni uppi í skóla.
En til gamans bjó ég til lítið forrit sem reiknar út hvað maður þarf að fá á lokaprófinu út frá vægi annareinkunnarinnar. Mjög sniðugt og gagnlegt forrit sem ég á eflaust eftir að nýta mér mikið í framtíðinni.
Segjum þetta bara ágætt í bili. ...]]></description>
	<description><![CDATA[Mig langaði aðeins að skrifa um auglýsinguna sem feministar vældu út af. Ég sá þessa auglýsingu í Fréttablaðinu um daginn. Vissulega vakti hún strax athygli mína, bæði þar sem hún var á heilsíðu ásamt því að samspil myndarinnar og textans vakti forvitni.
Ég sé þarna illa tilhafðan mann eða lækni með sprautu og einhvern sjúkling liggjandi á borði fyrir framan hann. Maðurinn er augljóslega ekki fagmaður, ef horft er út frá umhverfi og útliti hans. Hann lítur grunsamlega út, ásamt því að hann er illa tilhafður og óhreinn. Læknar eru oftast hreinir og snyrtilegir, þar sem þeir þurfa að fylgja ákveðnum reglum um hreinlæti.
Feministar vilja meina að það sé vegið að konum í þessari auglýsingu og segja að þarna liggi kona á bekknum og að auglýsingin sé tilvísun í ólöglegar fóstureyðingar.
Ég hef aldrei heyrt aðra eins vitleysu sem á ekki við nein rök að styðjast. Það eru t.d. engin merki um að þetta sé kona liggjandi þarna. Rökin sem feministar hafa komið með eru "kvenlegir fótleggir", en það eru engin rök þar sem þessir fótleggir eru ekki einu sinni kvenlegir! Auk þess hef ég aldrei vitað til þess að það sé hægt að sprauta fóstur úr konum?
Mér finnst þetta nú bara með betri auglýsingum sem ég hef séð á Íslandi. Hún vekur strax athygli, forvitni og umtal, og það er einmitt það sem góðar auglýsingar eiga að gera. Samtök Iðnaðarins hefðu bara strax átt að fara í hart, þar sem feministar hafa engin rök máli sínu til stuðnings.
Muna ekki allir eftir Smáralindabæklings-málinu? ...]]></description>
	<description><![CDATA[Á föstudaginn síðasta fór ég og dimmiteraði með skólanum mínum. Það var helvíti skemmtilegt og nokkuð skrautlegt, en þetta er í fyrsta skipti sem ég hef dimmiterað. Í þetta skiptið var Borgó mörgæsir.
Nóttin fyrir dimmiteringuna var skelfileg. Ég náði ekki að sofna fyrr en klukkan varð 5 og ég fór á fætur tveimur tímum eftir það, eða kl 7. Ég lét samt svefnleysið ekki á mig fá.
Ég mætti upp í skóla 10 mínútum of seint, en það hafði engin áhrif. Krakkarnir voru bara þarna í Spönginni í hóp að drekka og tala saman. Um leið og ég kom röltu allir upp í skóla í morgunmat.
Ég og aðrar mörgæsir
Ég tók með mér kippu af bjór í bakpoka en versta var að ég kláraði hana áður en ég fór niður í bæ seinna um morguninn. Það var hins vegar ekkert mál, þar sem ríkið var opnað.
En það var ekkert alltof skemmtilegt uppi í skóla. Maður var bara ölvaður í búning og lét alla í skólanum hlæja að sér. Stalst svo af og til inn á klósett til að drekka meira, þar sem maður mátti ekki drekka í skólanum eða á skólalóðinni og úti var ekki skemmtilegasta veðrið.
Svo var farið með strætó niður í bæ. Um leið og við komum niður í bæ var farið í heimsókn í MR þar sem kallað var þá ýmsum nöfnum. Svo var farið í Kvennó og síðan haldið niður á Austurvöll, þar sem allt fylltist af fólki í búningum.
Ég og Valentína í strætó
Ég hitti Gulla félaga minn, Birgittu sem er að vinna með mér og Steinu. Þau eru öll í FÁ og voru öll klædd upp sem cookiemonster, í bláum loðnum búningum.
En já, áfengið kláraðist og ég rölti bara í ríkið og keypti mér alltaf nýjan og nýjan bjór. Þannig maður var alltaf með eitthvað í höndinni, það vantaði ekki.
Svo þegar leið aðeins á daginn og klukkan var orðin 2, ákvað ég að segja þetta bara gott og fara heim og leggja mig, þar sem ég átti að mæta í mat á Sólon kl hálf 8.
Þegar ég kom dreif ég mig bara úr búningnum og beint upp í rúm og reyndi að sofna. Það gekk hins vegar erfiðlega að sofna þar sem ég hafði verið að drekka mikið af Cult Shaker þarna um daginn, og Cult er náttúrulega orkudrykkur. En ég náði að lokum að sofna.
Ég vaknaði handónýtur, dreif mig í sturtu og jakkafötin og beint á Sólon. Ég mætti einhverjum 20 mínútum of seint, en það var ekkert vesen, þar sem maturinn byrjaði ekki fyrr en kl sirka hálf 9.
Ég sá Gumma þarna á barnum og sá ekki neitt laust sæti við eitthvað borð, þannig ég ákvað bara að setjast við barinn og spjalla við Gumma.
Þetta var skelfilega illa undirbúið þarna á Sólon. Salurinn (efri hæðin) tók miklu minna í sæti heldur en við var búist. Réttara sagt tók salurinn 90 manns í sæti en þarna voru 130 manns.
Auk þess var hlaðborð. Ég bjóst við flottri máltíð fyrir 2200 kr. en þetta endaði bara í algjöru rugl hlaðborði. Maður fór í röðina þarna, beið í 20 mínútur og þegar komið var að manni, var allt það góða búið. Svo þegar það kom áfylling á það góða myndaðist aftur röð 3000 og maður fékk ekki neitt.
Eina sætið sem ég fékk var sem sagt við barinn. Svo á meðan allir voru að borða var fólk náttúrulega að gera sér endalausar ferðir á barinn og troðandi sér á milli mín og annara á meðan við vorum að borða. Djöfull fór þetta í mig.
Ég nennti ekki þessu rugli, fékk mér 2 bjóra og 2 skot og fór svo bara til Helga, þar sem ég hélt áfram að drekka. Svo fórum við í bæinn á smá tjútt. Ég, Helgi, Rakel og Gugga litla. ...]]></description>
	<description><![CDATA[Það er einhver ormur sem gengur manna á milli, sem ber heitið Downad eða Conficker. Þetta er að vísu ekki nýr ormur, þar sem hann kom fyrst upp á yfirborðið sem Conficker í fyrra en er greindur sem Downad í dag. Talið er að hann muni stökkbreytast á morgun, 1. apríl.
Út frá því sem ég hef lesið að þá hagar þessi ormur sér þannig að hann býr til einhverskonar þjón á tölvu hins sýkta, sem notar þekktan galla í Windows stýrikerfinu. Ormurinn tengist svo einu allsherjar P2P neti og dreifir þar með IP tölu hins sýkta.
Ormurinn býr svo til lista með 50.000 IP tölum/lénum, en hefur einungis samband við 500 af þeim og notar þá til að "matast", þ.e.a.s. fá nýjustu uppfærslur, nýjar aðgerðaráætlanir, o.s.frv.
Nánar um þetta á vef Skyggnis ...]]></description>
	<description><![CDATA[Fyrir mörgum árum skráði ég mig í þennan klúbb fyrir foreldra mína og skráði netfangið mitt undir því. Það voru heiftarleg mistök.
Fyrir svolitlu skráði ég mig svo úr klúbbnum, þar sem ég á ekkert erindi í þennan klúbb nú þegar foreldrar mínir eru komin með sinn eigin tölvupóst.
Ég fékk hins vegar sendan tölvupóst frá þessum klúbbi núna í dag, og hugsaði með mér hvort ég hefði ekki skráð mig úr honum um daginn.
Þannig ég fór á vefsíðuna þar sem maður getur skráð sig úr klúbbnum, sló inn netfangið mitt og fékk þá:
Ekki tókst að skrá þig úr tilboðspóstlista Vildarklúbbs. Viðskiptavinur nú þegar afskráður.
Hvernig stendur á því að þeir séu að senda á netföng sem eru búin að skrá sig úr klúbbnum? Annað hvort eru forritar póstlistans vanhæfir eða þá að sá sem sér um að senda þessi bréf, hafi ekki uppfært listann sinn.
Ég vitna í lögin:
http://althingi.is/lagas/nuna/2003081.html
46. gr. Óumbeðin fjarskipti.
- Notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts, [þ.m.t. hvers konar rafrænna skilaboða (SMS og MMS)],1) fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram.