Síðast breytt: 19. ágúst 2008

Almennt

Ég heiti Guðjón, kallaður Gaui, og er fæddur árið 1985 í Oslo í Noregi og bjó þar til 5 ára aldurs, en síðan þá hef ég búið í Reykjavík á Íslandi. Alveg frá því ég man eftir mér hef ég haft mikinn áhuga á tölvum og öllu tilheyrandi. Í kringum árið 1999 byrjaði ég að fikra mig áfram í forritun og sótti Visual Basic námskeið sem haldið var í Tölvuskóla Reykjavíkur á þeim tíma. Eftir smá fikt í Visual Basic kynntist ég vefforritunarmálinu PHP í gegnum Áka félaga minn, og við það kviknaði gífurlegur áhugi minn á PHP og vefsíðugerð, og í dag er ég búinn að vera flæktur í það í hartnær 7 ár.

Íþróttir

Öll mín yngri ár hef ég verið svolítið í íþróttum. Ég byrjaði t.d. mjög ungur í samkvæmisdansi úti í Noregi, en ég reyndi svolítið fyrir mér í því á meðan ég bjó þar. Þegar ég kom til Íslands reyndi ég fyrir mér í fótboltanum og körfuboltanum en entist mjög stutt í því, eða bara eitt sumar. Það voru aðallega frændur mínir sem reyndu að kveikja áhugann á því, en þeir voru mikið í boltanum þá.

Seinna kviknaði áhugi minn á handbolta en það var svolitlu eftir að ég byrjaði í grunnskóla. Ég hugsa samt að það hafi orðið vegna hópþrýstings frá strákunum í bekknum mínum, en 70% af strákunum í bekknum voru í handbolta hjá Fjölni. Ég varð samt aldrei neitt alvarlega góður í því, ég keppti á mörgum mótum og vann mörg en ég komst samt aldrei upp úr C-riðli.

Eftir að ég komst að því að ég væri hörmulegur í öllum alvöru íþróttum fór ég að huga meira og meira að dansinum, þó ég hafi alltaf verið með annan fótinn í honum. Ég byrjaði að æfa og keppa mjög mikið, og vann m.a.s. eitt Íslandsmeistaramót í unglingaflokki. Ég hætti svo á miðjum unglingsárunum en ástæðurnar voru m.a. gelgjan/leti og út af því að systir mín var miklu stærri en ég á þessu tímabili. En í fyrra (árið 2007) ákváðum við að byrja að æfa aftur og æfum við núna einu sinni í viku og erum í Dansskóla Sigurðar Hákonar.

En annars fyrir utan dansinn fer ég í ræktina þegar ég get og nenni. Ég var hjá einkaþjálfara árið 2007 og bætti ég mig helling þá í styrk, en svo komu jólin og ég byrjaði að taka mér pásur og sló öllu upp í kæruleysi. Ég ætla samt að byrja aftur. Það er erfiðast að byrja.


Ég þann 8. október árið 2007


MySpace: http://www.myspace.com/gauiis

Nafn: Guðjón Jónsson
Fæðingarár: 1985
Gælunafn: Gaui(.is)
Heimili: Í stóru hvítu húsi í Grafarvoginum
Afmælisdagur: 13. desember
Gæludýr: Ekki lengur. Átti hins vegar hund fyrir nokkrum árum, en hann fékk heilablóðfall :'(
Skóli: Borgarholtsskóli, á næst síðustu önninni minni
Vinna: Þjónn/barþjónn á Kringlukránni
Áhugamál: Vinirnir, djamm, snjóbretti og tölvan
Hjúskaparstaða: Á lausu
Draumastarf: Lögmaður
Matur: Pizza, rauðvínslegið nautakjöt í brúnni sósu, lambalæri og Hlölli! :)
Augnlitur: Brúnn
Hárlitur: Strípur bara, annars skol venjulega
Stjörnumerki: Bogmaður
Partýmanneskja? Ójá
Systkini: Jám, Ella Maja. Það má líka eiginlega segja að við Grétar séum hálfgerðir bræður :D
Bíll: Mercury Cougar 2ja dyra sportbíll með einkanúmerinu "WHY TRY"
Kostur: Ég gat ekki svarað þessu, þannig ég bað Grétar, vin minn, um að svara þessu. Hann sagði: "Opinn og traustur"
Ókostur: Auðvelt að gera mig sáran og pirraðan
Ósiðir: Drekk og reyki. Naga líka stundum skinnið á puttunum

Uppáhalds

Dýr: Hundar
Draumabílar: Pontiac GTO, BMW M3 E92 og Toyota Supra TT
Skemmtistaður: Sólon, en ef Sólon klikkar segi ég Apótekið eða Hressó
Drykkur á barnum: Kokteilarnir hans Gumma, Jägermeister í Burn, RedBull í vodka, Captain Morgan í Cult, eða bara Tuborg/Viking bjór af krana
Djammfæði: Hlölli er alltaf handan við hornið! Skyndibiti: American Style, KFC eða Hlölli
Drykkur: Kók
Litur: Blár og vínrauður
Leikari: Ryan Reynolds og Martin Lawrence
Bíómynd: The Prestige
Sjónvarpsþáttur: Friends og HIMYM án efa!
Hljómsveit: Ég er alæta á tónlist
Vikudagur: Laugardagur
Tungumál: Spænska
Fatabúð: Levi's, Mótor, Zara og Jack'n'Jones
Fatamerki: Carhartt, Levi's, Criminal og Lee

Hvort er betra...

Kók eða pepsi? Klárlega kók!
Kokteill, sterkt vín eða bjór? 1. Kokteilar - 2. Vodka+bland - 3. Bjór
Sumar eða vetur? Sumar fyrir afslöppun og veturinn fyrir snjóbretti!
Nótt eða dagur? Svefn á daginn og djamm um nætur
Sundlaug eða heitur pottur? Potturinn auðvitað
Bolur, skyrta eða peysa? Fer alveg eftir stemmningu...

Trúiru á...

Guð? Nei
Þróunarkenninguna?
Stjörnuspár?
Töfra? Nei, en sjónhverfingar eru til
Drauga? Já já
Geimverur? Nei
Líf eftir dauðann? Nei
Ást við fyrstu sýn? Nei
Framhjáhöld? Trúi ég á þau? Það er bara staðreynd að þau eru til og það eru úrþvætti sem stunda svoleiðis!

Hvort myndiru velja...

Nammi eða ís? Bragðarefur með daim, snickers og þristi. Mmmm...
Stráka eða stelpur? Bæði fyrir vini og stelpur fyrir maka
Kisu eða hund? Hund!
Ávextir eða grænmeti? Ávexti en broccoli og svoleiðis er alveg gott

Hefuru...

Strokið að heiman? Ekki þá lengur en í nokkra klukkutíma
Farið að gráta á almannafæri? Já, því miður
Viljað líta öðruvísi út? Já já, eins og eflaust allir
Reynt að drepa einhvern? Hehe, nei
Skrópað í skólanum? Já já, hafa ekki allir gert það? :P
Logið? Já, eins og eflaust flestir
Talað upp úr svefni? Já, örugglega :D
Svikið vin þinn? Tæknilega nei, en já því miður
Verið ástfanginn?
Lent í ástarsorg?
Valdið einhverri ástarsorg? Veit það ekki?

Spurningar

Hvern myndiru helst vilja hitta? Hayden Panettiere og Ryan Reynolds
Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu? Vinir mínir, velgengni og að reyna að skemmta sér
Hvað er það vandræðilegasta sem þú hefur gert? Uhm... rústa óvart Skjálfta (tölvumót) þegar ég var 13-14 ára
Hvað geriru um helgar? Ég vinn aðra hverja helgi og djamma hina
Sefuru með bangsa? Gerði það einu sinni já, en ekki lengur
Ertu myrkfælinn? Nei
Við hvað ertu mest hræddur? Vinamissi :(
Hvað hataru mest? Athyglissjúkt og tilfinningalaust fólk
Hvað ertu alltaf með á þér? Veskið, lyklana, símann og sígaretturnar
Skemmtilegasta party? Úff, þau eru svo mörg! :)
Leiðinlegasta vinna? Pósturinn klárlega
Ósanngjarnasta vinna? Bónus Video
Skemmtilegasta vinna? Fín þessi sem ég er í núna
Mest heillandi við hitt kynið? Augun, brosið og svo restin
Hver er tilgangurinn í lífinu? Ég er alltaf að reyna að komast að því, en ég kemst bara meira og meira að því hversu grá þessi veröld er

Hataru eða elskaru...

Vini þína? Ég elska þá alla með tölu ;*
Pöddur? Ég hata þær allar með tölu!
Tyggjó? Ekki mikill aðdáandi, þó ég grípi í það við og við
Svefn? Fer eftir því hvenær ég fæ hann
Að versla? Það er alltaf gaman... sérstaklega þegar maður á pening! :D
Skólann? Hann er ágætur... þó ég sé nú ekki duglegastur í heimi í honum
Vinnuna? Hún er ágæt
Dansa? Bara gaman :)
Syngja? Elska það! :D



Bíllinn minn

Ég keyri um á rauðum lúxusbíl. Nánar tiltekið Mercury Cougar 2000 árgerð. Hann er knúinn 2,5L vél sem skilar 170 hestöflum. Ef þú sérð rauðan bíl með einkanúmerinu "WHY TRY", þá er það ég. :)

Hérna eru myndir af honum: